• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 13. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Desemberuppbót en ekki biðraðir hjá hjálparsamtökum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. nóvember 2020
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Við vitum öll að sú kreppa sem nú gengur yfir kemur afar misjafnt niður á fólki eftir aldri, atvinnugreinum og búsetu. Ósk eftir aðstoð frá hjálparsamtökum hefur aukist til muna og sama má segja um beiðnir um fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna. Við hljótum að vera sammála um að draga úr neyðinni og það sé smánarblettur að fólk þurfi að leita á náðir hjálparsamtaka til að geta haldið jól.

Það minnsta sem hægt er að gera einmitt núna er að tryggja atvinnuleitendum desemberuppbót sambærilega þeirri sem er að finna í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði, þ.e. 94.000 krónur. Það er uppbótin sem aðilar vinnumarkaðarins hafa samið um sem viðmið og það er eðlileg krafa að atvinnuleitendur fái slíka uppbót. Að sama skapi skal tryggja uppbót fyrir öryrkja sem kemur þeim ekki í koll í harkalegum skerðingum þannig að desemberuppbótin verði skatta- og skerðingalaus. Gerum allavega þetta rétt og drögum úr neyðinni!

Í vikunni birti OECD ótrúlega skýrslu um samkeppnismat á Íslandi. Það er eins og dustað hafi verið rykið af skýrslu frá síðustu aldamótum og úreltar kreddur um að draga úr eftirliti séu í sjálfu sér góðar óháð innihaldinu. Við verðum að hafa í huga að reglur um mannvirki eins og aðrar reglur eru til að vernda heilsu og velferð fólks. Það verður að vera í forgrunni við allar ákvarðanir að við séum ekki að slaka á kröfum um velferð.

Sama má segja um tillögurnar um að draga úr löggjöf um löggiltar starfsgreinar – slíkar reglur eru settar til að tryggja fagmennsku og gæði umfram allt annað og við eigum að hafa þann metnað áfram. Að „draga úr samkeppnishindrunum“ í leigubifreiðaakstri er til að mynda glórulaus tillaga um að sleppa hark-hagkerfinu lausu og verður til þess eins að draga úr öryggi farþega og lækka tekjur þeirra sem hafa lífsviðurværi sitt af leigubifreiðaakstri. Gerum ekki sömu mistök og aðrar þjóðir í þeim efnum!

Endurreisum atvinnulífið á tryggum ráðningarsamböndum, fagmennsku og öryggi!
Góða helgi, Drífa

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Mokveiði en strandveiðibátar mega ekki veiða

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • 55,651,000 kr. greitt af 50% láni á Íslandi en 15,838,435 kr. af 100% láni í Færeyjum

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?