• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hættið að rukka van­greiðslu­gjald!

Hættið að rukka van­greiðslu­gjald!

Skuggahlið vangreiðslugjaldsins

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. janúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Á bílastæðum sem nota þjónustu Checkit.is eru engin vangreiðslugjöld innheimt. Þar undir eru meðal annars Þingvellir, Seljalandsfoss, Höfðatorg, Selafjaran og Hafnarhólmi. Ef ökumaður gleymir eða vanrækir að borga fyrir bílastæði fær hann senda kröfu í heimabanka. Upphæðin er sú hin sama og hann hefði átt að borga fyrir notkun stæðisins, ásamt 130 króna bankakostnaði. Það er allt og sumt. Ekkert vangreiðslugjald, engar hótanir. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í aðsendri grein Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra FÍB, og  Breka Karlssonar, formanns Neytendasamtaknna.

Samkvæmt okkar upplýsingum skila greiðslur sér allt að 100%. Fólk er nefnilega tilbúið til að borga fyrir veitta þjónustu.

Óútskýrð refsigjöld

Fæstir sætta sig aftur á móti við óútskýrð refsigjöld sem birtast fyrirvaralaust í heimabanka, dráttarvexti og innheimtukröfur fyrir einfaldar yfirsjónir eða gleymsku vegna afnota bílastæða. Þannig vinna Parka, Myparking, Sannir landvættir, Green parking og Autopay. Útbreidd gremja ríkir vegna þessara vinnubragða og stjórnvöld undirbúa nú aðgerðir..

Sátt myndi ríkja um Checkit.is leiðina

Engin vangreiðslugjöld, engar hótanir. Hið eina rétta er því að hætta að rukka vangreiðslugjöld.

Skuggahlið vangreiðslugjaldsins

Vangreiðslugjaldið er eftirlíking af bílastæðasektunum hjá Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélögum sem eiga sér skýra stoð í lögum. Lög heimila ekki að einkaaðilar beiti sektum. Til þess að innheimta vangreidd gjöld styðjast heiðvirð fyrirtæki við innheimtulög. Vangreiðslugjald bílastæðabraskaranna er miklu hærra en innheimtulög leyfa. Þau er óhæfilega há og í engu samræmi við meint tjón fyrirtækjanna eða kostnað þeirra, heldur eru þau lögð á til tekjuöflunar. Gjöldin eru því ósanngjörn og andstæð góðum viðskiptavenjum.

Aðeins var rukkað fyrir bílastæði við 6 ferðamannastaði fyrir fjórum árum. Sölumenn Parka/Myparking og Öryggismiðstöðvarinnar (Sannir landvættir og Green parking) hafa hins vegar herjað af krafti á landeigendur við aðra ferðamannastaði. Sölumennirnir hafa boðið ókeypis uppsetningu á gjaldtökubúnaði og fría innheimtu á stæðisgjöldum. Í staðinn fá bílastæðafyrirtækin hlut í stæðisgjaldinu og allt vangreiðslugjaldið. Fáir landeigendur slá hendinni á móti þessu. Afleiðingin er sú að nú er gjaldskylda á 44 bílastæðum á ferðamannastöðum, þar af eru 6 hjá Checkit.is.

Vangreiðslugjald er óþarft, það er ósanngjarnt og á mjög gráu svæði lagalega og tekjulind í sjálfu sér. Án hinnar ágengu sölumennsku má leiða líkur að því að sátt ríkti hér á landi um greiðslur fyrir afnot bílastæða þar sem þeirra er raunverulega þörf.

Við skorum á ofangreind fyrirtæki að hætta tafarlaust að leggja á vanskilagjöld! Jafnframt skorum við á eigendur bílastæða að skipta aðeins við fyrirtæki sem ekki leggja á vangreiðslugjöld!

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.

Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

Fyrirtæki í bílastæðaþjónustu sektuð fyrir slæma viðskiptahætti

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Alþingismanni hótað

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?