• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 13. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Forsætisráðherra á fundi leiðtoga JEF-ríkjanna

JEF er samstarfsvettvangur líkt þenkjandi Evrópuríkja í öryggis- og varnarmálum þar sem öll Norðurlöndin eiga aðild

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. mars 2022
in Erlent, Fréttir
A A
0

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í fundi leiðtoga þátttökuríkja í Sameiginlegu viðbragðssveitinni (e. Joint Expeditonary Force, JEF) í London. Umræðuefni fundarins var ástandið í Úkraínu og staða öryggis- og varnarmála í Evrópu í kjölfar innrásar Rússlands.

Á fundinum ræddu leiðtogarnir hvernig ríkin gætu stutt frekar við Úkraínu, bæði hernaðarlega og í formi mannúðaraðstoðar. Volodomyr Zelenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði fundinn í gegnum fjarfundabúnað. Þá var sérstaklega rætt um þá stöðu sem upp er komin í öryggis- og varnarmálum á norðurslóðum og í Eystrasalti í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu og hver áhrifin verða til framtíðar.

JEF er samstarfsvettvangur líkt þenkjandi Evrópuríkja í öryggis- og varnarmálum þar sem öll Norðurlöndin eiga aðild, Eystrasaltsríkin, Holland og Bretland, sem leiðir samstarfið. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, bauð til fundarins en leiðtogarnir hittust einnig í kvöldverðarboði í gær. Forsætisráðherra átti einnig stutta tvíhliða fundi með Magdalenu Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands.

Þá átti forsætisráðherra fund í gær með Keir Starmer, leiðtoga Verkamannaflokksins, og Ed Miliband, skuggaráðherra loftslagsmála um stöðuna í Úkraínu og efnahagsleg og samfélagsleg áhrif vegna innrásarstríðs Rússa. Þá ræddu þau græna tækni og lausnir í loftslagsmálum.

Umræða
Share9Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Mokveiði en strandveiðibátar mega ekki veiða

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • 55,651,000 kr. greitt af 50% láni á Íslandi en 15,838,435 kr. af 100% láni í Færeyjum

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?