Mennta- og barnamálaráðuneytið styður við sálfræðiþjónustu barna hjá SÁÁ.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra og Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ skrifuðu undir samninginn sem mun sannarlega bæta þjónustu fyrir börn sem búa við fíknisjúkdóm náinna aðstandenda og stytta bið eftir þjónustunni. Verkefnin sem styrkt eru samkvæmt samningnum eru:
- Ráðinn verði sálfræðingur til eins árs til að sinna sálfræðiþjónustu til barna skjólstæðinga SÁÁ.
- Foreldrar sem leggjast inn á Vog, eða fá göngudeildarþjónustu, fái kynningu á sálfræðiþjónustu barna og þeim sem eiga börn á aldrinum 8-18 ára verði boðið að skrá barn/systkini í þjónustu SÁÁ.
- Sálfræðiþjónusta til barna verði veitt samhliða áfengis- og vímuefnameðferð foreldra eða samhliða því að fjölskylda er á námskeiði í fjölskyldudeild. Þjónustuþörf skal metin í upphafi en hægt verði að bjóða börnum upp á allt að átta viðtöl hjá sálfræðingi. Börn verði metin í upphafi og lok meðferðar með gagnreyndum mælitækjum með tilliti til andlegrar líðan og sjálfsmyndar til að meta árangur.
Umræða