Samningur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um takmörkun ríkisstyrkja í sjávarútvegi tók gildi í dag þegar tilskyldum fjölda aðildarríkja, sem hafa fullgilt hann, var náð. Ísland var eitt af fyrstu aðildarríkjum stofnunarinnar til að fullgilda samninginn og tilkynnti formlega um það 23. maí 2023.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti ávarp í gegnum fjarfundarbúnað á sérstakri hátíðarathöfn sem fram fór af þessu tilefni, ásamt fleiri þjóðhöfðingjum ríkja sem hafa fullgilt sammninginn. Ngozi Okonjo-Iweala, framkvæmdastjóri alþjóðaviðskiptastofnunarinnar stýrði viðburðinum.
„Þetta er stór áfangi sem stuðlar að sjálfbærni hafsins og skapar grundvöll fyrir ábyrgari nýtingu fiskistofna á heimsvísu,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, í tilefni þess að samningurinn hefur nú tekið gildi. „Saga Íslands sýnir að hægt er að byggja upp blómlegt samfélag með sjálfbærri stjórnun fiskveiða. Nú höfum við tækifæri til að miðla þeirri reynslu og leggja okkar af mörkum fyrir komandi kynslóðir.“
Samningurinn markar tímamót í baráttunni fyrir sjálfbærri nýtingu sjávarauðlinda og er fyrsti alþjóðlega bindandi samningurinn sem beinist að ríkisstyrkjum sem stuðla að ofveiði og veiði á svæðum sem lúta engri fiskveiðistjórnun.
Ísland var eitt þeirra ríkja sem hleypti samningaviðræðunum úr vör á sínum tíma og hefur allt frá upphafi verið í fararbroddi viðræðnanna. Þannig gegndi fastafulltrúi Íslands í Genf, Einar Gunnarsson sendiherra, stöðu formanns samninganefndar viðræðnanna frá 2022 til ársins í ár. Reynsla Íslands af uppbyggingu sjálfbærs fiskveiðistjórnunarkerfis, sem stuðlar einnig að hagsæld í greininni, hefur gegnt mikilvægu hlutverki í viðræðunum með því að sýna fram á að sjálfbær stjórnun fiskistofna er lykillinn að efnahagslegri velferð til lengri tíma.
Samningurinn kveður einnig á um aðstoð við fátækari aðildarríki WTO við undirbúning og uppbyggingu getu til þess að undirgangast skuldbindingar samningsins. Þar mun Ísland gegna mikilvægu hlutverki.
Ísland hvetur aðildarríki WTO til að halda áfram viðræðum um viðbótarreglur sem lúta að ríkisstyrkjum sem stuðla að umframveiðigetu og ofveiði.



