• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 12. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Þungt högg fyrir ungt fólk og erlenda ríkisborgara – Atvinnuleysi vaxandi og mælist rúm 18%

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. október 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Skýrsla sérfræðingahóps verkalýðshreyfingarinnar um efnahagsleg áhrif COVID-faraldursins

Þungt högg fyrir ungt fólk og erlenda ríkisborgara – Ólík áhrif eftir landsvæðum og kyni
Efnahagskreppan af völdum COVID-faraldursins hefur komið sérstaklega þungt niður á ungu fólki og erlendum ríkisborgurum hér á landi. Atvinnuleysi er afar mismunandi eftir landsvæðum og kynbundin áhrif COVID-kreppunnar hafa m.a. komið fram í hlutfallslega mikilli aukningu atvinnuleysis meðal kvenna með grunnskólapróf og í auknu álagi af ólaunaðri vinnu. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í fyrstu skýrslu sérfræðingahóps verkalýðshreyfingarinnar um efnahagsleg áhrif COVID-faraldursins sem birt er í dag. Hópurinn hóf störf um miðjan september og áformar að senda frá sér reglulega skýrslur um áhrif COVID-kreppunnar.

Í þessari fyrstu skýrslu er athygli sérstaklega beint að hópum í viðkvæmri stöðu á vinnumarkaði og áhrifum faraldursins á þá. Í efnahagslegu tilliti hefur samdráttur á Íslandi bitnað á erlendum ríkisborgurum umfram íslenska. Atvinnuleysi í þessum hópi er mjög mikið og langt umfram meðaltal í landinu. Atvinnuleysi meðal ungs fólks er einnig vaxandi og mælist rúm 18% í aldurshópnum 16-24 ára.
Vakin er athygli á að atvinnuleysi og ógn við afkomu geti aukið hættu á vinnumarkaðsbrotum gegn launafólki. Í skýrslunni kemur einnig fram að kynbundin áhrif COVID-veirunnar birtast í auknu álagi á kvennastéttir og inni á heimilum. Athygli er vakin á því að einkum konur sinni umönnunarstörfum og ólíkt mörgum öðrum eigi þær þess því ekki kost að sinna störfum sínum í fjarvinnu. Konur í lægri menntunar- og tekjuflokkum verða fyrir mestum áhrifum í yfirstandandi efnahagssamdrætti.
Fyrirliggjandi tölur gefa til kynna að atvinnuleysi komi af miklum þunga niður á íbúum Suðurnesja og Suðurlands. Hlutfallsleg aukning atvinnuleysis á Suðurnesjum er 92% frá í marsmánuði. Sérfræðingahópurinn hvetur stjórnvöld til að setja sér heildstæða atvinnustefnu sem sé um leið verkfæri til að takast á við afleiðingar COVID-kreppunnar og stuðla að uppbyggingu til framtíðar. Þá sé nauðsynlegt að sértækum aðgerðum verði beint að ungu fólki og erlendum ríkisborgurum, auk þess að tekist verði á við svæðisbundinn vanda atvinnuleysis. Loks telur hópurinn mikilvægt að fylgjast vel með kynbundnum áhrif COVID-kreppunnar og að vinnumarkaðsaðgerðir taki mið af þeim.
Hér má lesa fyrstu skýrslu sérfræðingahópsins um efnahagsleg áhrif COVID faraldursins

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Verr farið með Ísland en Namibíu – Kvótakerfið til Mannréttindadómstólsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?