Áhöfnin á varðskipinu Freyju fylgdi bandaríska kafbátnum, USS Indiana, um landhelgina í vikunni. Kafbáturinn var hingað kominn í stutta þjónustuheimsókn og áhafnarskipti. Áhafnarskiptin fóru fram í Stakksfirði.
Þetta er í fimmta sinn sem kjarnorkuknúinn kafbátur bandaríska sjóhersins kemur í þjónustuheimsókn í íslenska landhelgi eða frá því að utanríkisráðherra tilkynnti í apríl 2023 að slíkum kafbátum yrði heimilað að hafa stutta viðkomu úti fyrir ströndum Íslands til að taka kost og skipta út hluta áhafnar. USS Indiana er orrustukafbátur af Virginia-gerð og slíkir kafbátar bera ekki kjarnavopn.
Landhelgisgæsla Íslands leiðir framkvæmd heimsóknarinnar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og utanríkisráðuneytið í samræmi við settar verklagsreglur.
Liðsmaður séraðgerðasveitar.
Umræða