• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 4. desember 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
Áskrift
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Undirbúningur fyrir lagningu Suðurnesjalínu

by Ritstjórn
15. desember 2020
in Fréttir, Innlent
0
Deila á FacebookDeila á X

 

Undirbúningur fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2 hefur staðið yfir lengi og við hjá Landsneti höfum í mörg ár talað fyrir mikilvægi þess að ráðast í framkvæmdir til að bæta afhendingaröryggi raforku á Suðurnesjum og auka flutningsgetu raforkukerfisins milli höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja.

Eftir að álit Skipulagsstofunnar á nýju umhverfismati lá fyrir var farið aftur yfir matið og tekið samtal við sveitarfélögin, Orkustofnun, landeigendur og verkefnaráð línunnar . Auk þess voru gögn um jarðvá sérstaklega yfirfarin af rannsóknaraðilum vegna aukinnar jarðskjálftavirkni á Reykjanesi.

Eftir ítarlega yfirferð og rýni er niðurstaðan varðandi aðalvalkost óbreytt, þ.e. loftlína með fram Suðurnesjalínu 1. Ákvörðunin byggir á grundvelli ákvæða raforkulaga sem kveða á um skyldur Landsnets um að byggja upp öruggt og hagkvæmt flutningskerfi raforku og stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfisins. Að auki byggir ákvörðunin á ákvæðum laga um mat á umhverfisáhrifum um að leyfisveitingin byggi á upplýstri ákvarðanatöku hvað varðar áhrif framkvæmdarinnar á umhverfið, þar sem bornir hafa verið saman valkostir, umhverfismatið kynnt opinberlega og almenningi og hagsmunaaðilum gefið tækifæri til að koma á framfæri ábendingum.

Í áliti Skipulagsstofnunar var farið fram á að sveitarfélögin tækju sameiginlega afstöðu og í ljósi þess að nú eru liðnir um sex mánuðir og að ekkert lát virðist á jarðhræringum á Reykjanesi, sem enn frekar ýtir undir mikilvægi þess að koma á annarri tengingu Suðurnesja við meginflutningskerfið, hefur Landsnet nú ákveðið að sækja um framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 og var beiðni þessi efnis send á viðkomandi sveitarfélög föstudaginn 11. desember.

Umræða
  • Bílvelta við Tjörnina

    Bílvelta við Tjörnina

    60 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Fann barnið sitt nakið og grátandi inni á klósetti í IKEA

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Karlar sem fremja sjálfsvíg – Einelti, falskar ásakanir og ofbeldi

    204 deilingar
    Share 82 Tweet 51
  • Banaslys í Reykjanesbæ

    112 deilingar
    Share 45 Tweet 28
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?