Útgerðarmenn strandveiðbáta eru mjög bjartsýnir á að kvótakerfinu verði breytt með nýrri ríkisstjórn og hyggjast fara fram á átta mánaða veiðileyfi fyrir hvern bát á ári. Sem og heimild til þess að leigja 10.000 tonn af þorski af ríkinu/þjóðinni og borga margfalt meira fyrir þau tonn í veiðigjöld til eigandans en stórútgerðin hefur gert síðustu 40 ár.
Sala á bátum til strandveiða hefur aukist og horfa menn nú til þess að vera með stærri báta sem hægt er að nota allt árið. Þá er loksins útlit fyrir að nýjir aðilar komist inn í greinina.
,,Hvernig leggst svona hugmynd í menn? – 48 dagar og engin stöðvun 8 mánuði á ári.
Og 10.000 tonn sem kvótalausir bátar fá aðgang að sem og bátar sem leigja ekki frá sér tilboð Landssamband smábátaeigenda og bátar með kvóta þurfa að hafa veitt allann sinn kvóta til að öðlast rétt á afnotum úr þessum heimildum. Engar undanþágur eru fyrir hendi.
Greiðsla fyrir veiðiheimildir fara fram við sölu á fiskmarkaði sem dregur gjaldið frá við sölu
Strandveiðar bátar hafa rétt til að nýta þessar heimildir fyrir og eftir að þeir hafa nýtt 48 daga sína að fullu. Öll greiðsla fyrir þessar heimildir skal fara fram við sölu á fiskmarkaði sem dregur gjaldið frá við sölu. Ekki verður hægt að leigja úr þessum heimildum fyrirfram.
Ufsi og aðrar tegundir en þorskur verði utan kvóta
Enda aðeins tvö tonn af þorski í boði og að sækja sem meðafla á dag eða róður. Fyrir hvern þann bát sem hyggjast nýta þessar heimildir. Enda eru þessar heimildir hugsaðar sem hvati til að sækja tegundir eins og ufsa sem brennur inni og er engum til gagns ár hvert.
Svona lítur mín hugmynd út. Væri til í að fá í komentum hvernig menn sjá þetta fyrir sér.“ Segir Magnús Ívar Guðbergsson, vistvænn strandveiðisjómaður.
48 dagar og leigja 10.000 tonna kvóta af ríkinu/þjóðinni
,,Sælir félagar nú þegar kanski hyllir undir ríkisstjórn sem við strandveiðimenn bidum töluverðar vonir við,er þá ekki skílaus krafa um fasta 48 daga okkur til handa,væri þá ekki sterkur leikur að bjóða ríkinu tvöfalt það gjald sem stórútgerðin vælir og skælir yfir, við værum öruggir með alla vega tíu eða fleiridaga heldur en við höfum þurft að sætta okkur við undan farin sumur.
Miðað við stefnu og málflutning tveggja stærri flokkanna sem eiga nú í viðræðun um nýa ríkisstjórn myndi það hjálpa þem í ákvarðanatöku um þessi mál. Endilega hugsið og segið ykkar skoðunn á þessari hugmynd Ást og friður.“ Segir útgerðarmaður.
,,Hér er umræðuþáttur um fyrirhugaða breytingu á kvótakerfinu.“ Segir Magnús Ívar Guðbergsson, vistvænn strandveiðisjómaður.