Samtökum um karlaathvarf barst erindi frá Ingimundi Stefánssyni sem hann sendi Félagsmálaráðherra í frh. af umfjöllunum fjölmiðla, hvar samtökin bentu á hugsanleg hagsmunatengsl aðila innan ráðuneytisins við þau félagasamtök sem hafa árum saman fengið styrki. Ómaklega er veist að persónum er starfa að málefni karlaathvarfsins, bæði í orðalagi „matsmanna“ ráðuneytisins og af fjölmiðlum. Sjá hér tölvupóstinn fyrir neðan.

„B.t. ráðherra, hagsmunaárekstrar innan félagsmálaráðuneytis, útgreiðsla styrks, framkvæmd rannsóknar, hagsmunagæsla fyrir karla og drengi einnig.
Komdu sæll Ragnar Þór, og velkominn í ráðherrastarfið!
Hagsmunaárekstrar innan ráðuneytis?
Rannsaka þarf meinta hagsmunaárekstra innan félagsmálaráðuneytisins sem greint er frá í Nútímanum í dag, sjá tengil neðar.
Þar gerir formaður Samtaka um karlaathvarf athugasemd við að starfsmaður félagsmálaráðuneytisins bæði komi að mati á styrkumsóknum og styrksúthlutunum og sitji í stjórn samtaka sem styrkjum er úthlutað til, sem og situr í stjórn með aðilum sem eru forsvari fyrir eða starfsmenn samtaka og fyrirtækja sem fá styrki.
Nauðsynlegt er að málið sé skoðað, og brugðist við í samræmi við stjórnsýslulög og reglur og siðlegheit.
Hæfi starfsmanna matsnefndar styrkja og rökstuðningur álits
Skoða þarf hversu viðeigandi er að matsnefnd um styrki sé skv. ráðuneytinu skipuð starfsmönnum ráðuneytisins ef þessir komi líka að starfi samtaka sem sæki um og jafnvel fái styrki en ráðuneytið hefur að virðist ekki viljað upplýsa hverjir matsnefndarmenn eru þrátt fyrir ítrekanir. Slíkt er óásættanlegt með hliðsjón af aðhaldshlutverki almennings, lýðsins í lýðræðinu og gegnsæi.
Enn fremur er viðeigandi að skoða óframkominn rökstuðning matsnefndar fyrir áliti sínu á styrksumsóknum yfir höfuð, hvort hann sé gegnsær, réttmætur, og hvort þar gæti jafnræðis gagnvart umsóknaraðilum eða mismunar.
Skoða þarf og þá hætta kynjamismunun af hálfu ráðuneytis
Jafnframt tel ég viðeigandi að skoða hvort matsnefnd ráðuneytisins í gegnum tíðina og nú mismuni styrkumsóknum og starfi eftir kynjum.
Hafnað hefur verið ítrekuðum beiðnum um ríkisstyrki og úr Jafnréttissjóði til starfs Samtaka um karlaathvarf, og til t.d. Félags um foreldrajafnrétti (áður félags Ábyrgra feðra) sem og félags meðlagsgreiðenda á sínum tíma hvar feður, karlmenn eru meirihluti skjólstæðinga, í gegnum árin, allt frá árinu 2012/3 skv. mínum upplýsingum.
Fyrsta ríkisstyrk veitti nú Inga Sæland fyrrum félagsmálaráðherra Samtökum um karlaathvarf stofnuðum 2018, upp á 3,5m kr. Styrk til hluta þeirrar starfsemi sem sótt var um, að aðstoða karlkyns þolendur ofbeldis, veita ráðgjöf og aðstoða með hýsingu. Inga Sæland mat stöðuna hins vegar þannig sbr. Kastljósviðtali og sennilega líka út frá umsóknargögnum að sér hefði þótt það sem Samtökin um karlaathvarf sinna, ráðgjöf, aðstoð og hjálp til karlkynsþolenda þarft verkefni og vert að styðja, það hafi skort að tekið sé sérstaklega utan um karlmenn, þeir hafi átt undir högg að sækja að henni finnist oft á tíðum. Ég tel þetta rétt mat Ingu.
Skoða þarf hvort það gæti hlutdrægni í starfsemi og stuðningi ráðuneytisins eftir kynjum og hvort 55% landsmanna, karlmenn og drengir, sitji eftir með skarðann hlut.
Greiða út veittan styrk
Umræddur styrkur til Samtaka um karlaathvarf hefði ekki verið útgreiddur þann 14. janúar s.l. Vil ég biðja þig að koma á greiðslu hans þegar í stað.
Tryggi vinnslu rannsóknar þegar ákveðinni af ráðuneytinu
Ennfremur vil ég hvetja þig til að tryggja að rannsókn sú sem ráðuneytið ákvað að láta vinna á ofbeldi gagnvart karlmönnum á Íslandi, rannsókn sem Samtök um karlaathvarf óskuðu eftir styrk til að láta vinna en fengu ekki styrk til, verði unnin.
Og verði unnin af fagaðilum sem treystandi er til að láta persónuleg viðhorf til kynja ekki ráða nálgun, verði unnin í samráði við karlasamtök og samtök hvar karlar og drengir eru stór hluti umbjóðenda.
Ráðherra, ríki og ráðuneytið vinni líka að hagsmunum 55% landsmanna, drengja og karla
Að lokum vil ég biðja þig að gæta þess að hagsmunum karla og drengja verði sinnt eins og hagsmunum kvenna og kvára innan ráðuneytis, ríkisstjórnar og stjórnkerfis m.m.
Innan ríkisstjórnar, stjórnsýslu og löggæslu og dómskerfis er halli gagnvart karlmönnum
Þríframlögð framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum inniheldur sem dæmi 37 aðgerðir til handa konum, en bara 2, etv. 3 til handa karlmönnum í landi sem skorað hefur hæst á skala Sameinuðu þjóðanna í 16 samfelld ár.
Enginn 18 opinberra stofnana og samtaka gættu hagsmuna karla og drengja. Ekkert þeirra gerðu í umsögn um frumvarpið athugasemd við að í frumvarpinu sé lítið eða ekki hugað hagsmunum þeirra og bara örfá þeirra nefndu karla og drengi á nafn. Það er sláandi.
Uppræting kynbundins ofbeldis í garð kvenna er sérstök áhersla dómsmálaráðherra og forsætisráðherra. Þær hafa ekki svarað ákalli í ítrekuðum tölvupóstum og í gegnum ofangreinda umsögn og í kjölfar fundar með allsherjarnefnd um upprætingu kynbundins ofbeldi í garð karla innan dómskerfis m.a.
Skv. ítrekaðri erlendri tölfræði verða karlar fyrir álíka tíðu kynbundnu ofbeldi, para- og makaofbeldi og konur, jafnvel tíðara líkamlegu. Samanber m.a. mastersrannsókn Helgu Völu Helgadóttur og erlendar rannsóknir lika fá íslenskir karlmenn frekar refsingar og fangelsisdóma en konur fyrir sömu brot og líka þyngri.
100% kynjahalli er á skrifstofu jafnréttismála í dómsmálaráðuneyti
100% kynjahalli er á skrifstofu jafnréttismála í dómsmálaráðuneyti. Sú er eingöngu skipuð konum, 7 eða 8. Slíkt er óásættanlegt út frá öllum viðmiðum. Enn fremur er óskiljanlegt að 5 lögfræðinga þurfi á þá skrifstofu þegar margar ríkisstofnanir eru með 1-2 lögfræðinga. Breyta þarf kynjasamsetingu og skoða inntöku stjórnsýslufræðinga, félagsfræðinga, félagsráðgjafa, etv. sálfræðinga. Etv. ætti við að staðsetja skrifstofuna í öðru ráðuneyti en dómsmálaráðuneyti, s.s. félagsmálaráðuneytinu.
Ríkisútvarpið virðist svo ítrekað brjóta gegn 3. gr. laga um RÚV, 7. lið um m.a. birtingu mismunandi skoðana, gagnstæðra, skoðanir jafnt karla sem kvenna og sýna hlutdrægni. Enda þótt um opinbert hlutafélag sé að ræða þá er það á ábyrgð ríkisins. Og þar þarf að bregðast við.
Ég býst við ákveðnum vinnubrögðum vegna ofangreinds og að upplýst verði um að málið sé skoðað. Og vil óska þér góðs gengis í starfi sem ráðherra, okkur drengjum, karlmönnum og þjóð allri til heilla.
Fyrirfram þökk og kveðju, Ingimundur Stefánsson
Afrit sent á Samtök um karlaathvarf.
Tengill á frétt Nútimans: https://www.nutiminn.is/…/gagnrynir-hardlega-andstodu…/
Tengill á umfjöllun RÚV um málið:
https://www.ruv.is/…/2026-01-13-inga-veitti-samtokum…
Kastljósviðtal, sjá mín 20:07:50 https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/kastljos/38169/bc0870
Tengill á umfjöllun Vísis um málið: https://www.visir.is/…/kaus-ad-stydja-karlasamtok-i…
Samtök um karlaathvarf -„ekki réttu aðilarnir til að hljóta styrk“

