Félags- og barnamálaráðherra hefur gefið út reglugerð sem felur í sér endurskoðuð tekju- og eignamörk leigjenda almennra íbúða við upphaf leigu. Tekju- og eignamörkin gilda einnig um leigjendur íbúða sem Íbúðalánasjóður hefur veitt lán til og eingöngu eru ætlaðar tilgreindum hópi leigjenda sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga nr. 44/1998, um húsnæðismál, og reglugerð nr. 1042/2013, um lánveitingar Íbúðalánasjóðs til sveitarfélaga, félaga og félagasamtaka sem ætlaðar eru til byggingar eða kaupa á leiguíbúðum.
Tekjumörk
Samkvæmt uppfærðum tekjumörkum skulu árstekjur leigjenda almennra íbúða við upphaf leigu ekki nema hærri fjárhæð en 5.345.000 kr. (í stað 5.105.000 kr. áður) fyrir hvern einstakling en 7.484.000 kr. (í stað 7.148.000 kr. áður) fyrir hjón og sambúðarfólk. Við þá fjárhæð bætast 1.336.000 kr. fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu (í stað 1.276.000 kr. áður).
Eignamörk
Samanlögð heildareign leigjenda almennra íbúða að frádregnum heildarskuldum við upphaf leigu samkvæmt skattframtali síðasta árs, staðfestu af ríkisskattstjóra, skal ekki nema hærri fjárhæð en 5.769.000 kr. (í stað 5.510.000 kr. áður). Reglugerð nr. 156/2019
Umræða