Uppfært: ,,Takk fyrir aðstoðina við að leita að bílnum. Eftir vísbendingu þá fórum við Pétur upp í Norðlingaholt og fundum bílinn þar. Smá búið að róta í honum, skemma annan barnabílstólinn og í bílnum fannst þýfi úr innbroti tveimur götum neðar.
En við erum allavega komin með bílinn þó að eitthvað vanti úr honum, og þökkum sko innilega fyrir það. Takk innilega “ segir eiginkona Péturs.
Þess má geta að fréttinni var deilt 341 sinnum á Fréttatímanum og um 30.000 manns sáu fréttina. Allt er gott sem endar vel.
,,Við leituðum í fleiri klukkutíma í gær án árangurs, kannski þið getið hjálpað okkur?“
,,Elsku vinir, bílnum okkar fjölskyldunnar var stolið í gær og er enn ekki fundinn. Þetta setur allt okkar líf í uppnám og í honum voru báðir barnabílstólar barna okkar.“ Segir faðir sem að varð fyrir því óláni að bíl fjölskyldunnar var stolið.
,,Viljið þið hafa augun opin í dag í götunni ykkar, jafnvel hverfinu og á leið í vinnuna, hvort að þið sjáið Svarta Hondu CRV jeppling með númerinu YJ-630. Hann er með tjónað hægra frambretti.
Það gæti verið að bíllinn standi einhversstaðar yfirgefinn. Við leituðum í fleiri klukkutíma í gær án árangurs, kannski þið getið hjálpað okkur Takk fyrir!
Skipulag fjölskyldunnar sett í uppnám
,,Það að bílnum var stolið hefur sett allt skipulag fjölskyldunnar í rugl. Konan mín sá um að skutla litlu stelpunum okkar á þessum bíl í fótbolta, fimleika og ballett. Nú er það þvílíkt púsluspil að láta það ganga allt saman upp. Svo auðvitað allt það nauðsynlega sem að fólk þarf að gera á bílum sínum.“ Sagði Pétur við Fréttatímann.
Ég er með vinnubíl og reyni að gera eins og ég get, en get ekki auðvitað ekki reddað öllu. Þeir sem að geta veitt upplýsingar um hvar bíllinn er, vinsamlega hafið samband við mig, Pétur í síma 899-2804. (ATH myndin er af samsskonar bíl en ekki sama).