Norksa krónan hrynur!
Sérfræðingar spá stórkostlegu verðstríði á olíu. Í nótt lækkaði olíuverðið enn meira og svo gerði norska krónan líka. Verð á Norðursjávarolíu féll um meira en 30 prósent í gær, í um 31 dollara á tunnuna eftir að viðræðum var hætt milli Opec-ríkjanna undir forystu Sádi Arabíu og Rússlands.
Norska krónan er núna aðeins rétt tæpar 13 krónur gagnvart t.d. íslensku krónunni og er tæplega krónu undir sænsku krónunni sem hefur ekki gerst áður. Þá er danska krónan 20.40 á sama tíma og því ljóst að norska krónan stendur hrikalega illa og á líklega eftir að lækka enn meira.
Opec-löndin höfðu upphaflega viljað samning um að draga úr olíuvinnslu vegna verulega minni eftirspurnar vegna kórona vírussins sem herjar á heiminn. Þegar verðið var sem lægst var verðið meira en 30 prósent lægra eftir að viðskipti hófust í gær á sunnudagskvöldi 31,02 USD var þá tunnuverðið.
Sérfræðingar telja að verðstríð á olíu muni hefjast þegar fyrri samningur við Opec-ríkin rennur út í lok mars. Fræðilega séð gætu Sádi Arabía og Rússland aukið framleiðsluna eins mikið og þeir vildu og verðið gæti farið niður í 20 dali fyrir tunnuna. Kórona vírusinn hefur leitt til færri ferðalaga og Þannig hefur eftirspurnin eftir olíu hrunið. Nú er óttinn um að veiran muni valda enn frekari veikingu hagkerfisins og að eftirspurnin muni lækka enn frekar.
Árið 2014 tókst OPEC ekki að draga úr framleiðslu til að halda markaðshlutdeild sinni í baráttunni gegn vaxandi olíuiðnaði í Bandaríkjunum. Þetta leiddi til lækkunar á olíuverði árið 2015 úr 100 dollurum í undir 40 USD fyrir tunnuna. Verðfallið nú mun hafa áhrif á olíuframleiðendur um allan heim, einnig í Noregi þar sem hrunið á olíuverði er komið í ljós nú þegar að sögn helsta Viðskiptablaðs Noregs.