• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Miðvikudagur, 7. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

NÝ ÖKUSKÍRTEINI

ritstjorn by ritstjorn
26. maí 2023
in Afþreying, Fréttir, Innlent, Neytendur
0
NÝ ÖKUSKÍRTEINI
Share on FacebookShare on Twitter

Stefna að nýju stafrænu evrópsku ökuskírteini

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði í byrjun mars fram tillögur um að einfalda viðurkenningu ökuskírteina á milli aðildarríkjanna með innleiðingu stafræns ökuskírteinis og um frekari samhæfingu umferðarreglna.

Framkvæmdastjórnin hefur samþykkt að hefja undirbúning að því að taka upp stafrænt ökuskírteini. Stafræna ökuskírteinið á að verða aðgengilegt í miðlægu skráningarkerfi. Nýja skírteinið mun draga verulega úr möguleikum brotlegra ökumanna að komast undan sektum og öðrum viðurlögum vegna umferðarlagabrota utan heimalandsins. Með svona breytingum mun ökumaður sem er sviptur ökuleyfi í einu landi missa ökuleyfið í öllum aðildarlöndum ESB og sennilega mun það ná til evrópska efnahagssvæðisins sem Ísland er aðili að.

Framkvæmdastjórnin stefnir að því að bæta öryggi allra vegfarenda og styðja framtíðarmarkmið ESB um núllsýn, þ.e. engin dauðsföll í umferðinni árið 2050. Yfir 20.000 létust í umferðarslysum í aðildarríkjunum á síðasta ári (2022) og af þeim voru óvarðir vegfarendur fjölmennastir.

Til stendur að samhæfa ýmiss ákvæði í umferðarlögum aðildarríkjanna. Meðal þess er að þeir sem standast ökupróf fái ökuskírteini til bráðabirgða, a.m.k. fyrstu tvö árin, áður en þeir fá útgefið fullnaðarskírteini. Setja á sameiginlegar reglur um núll prósent alkóhól í blóði ökumanna með bráðabirgðaskírteini. Samhæfa á reglur um æfingaakstur og auka meðvitund ökunema fyrir öðrum í umferðinni og þá sérstaklega óvörðum vegfarendum. Markmið þessara breytinga er að auka öryggi gangandi vegfarenda, hjólreiðafólks og notenda rafskúta.

Stafræn ökuskírteini auðvelda gagnkvæma viðurkenningu á ökuskírteinum innan aðildarríkja ESB og það verður auðveldara og ódýrara að endurnýja eða skipta út ökuskírteini með rafrænum hætti.

Í tillögum framkvæmdastjórnarinnar er einnig lagt til að ökumenn frá löndum þar sem umferðarmenning og umferðaröryggi er með svipuðum hætti og í Evrópu geti fengið ESB-ökuskírteini. Annað hvort án viðbótar þjálfunar eða prófa eða með því að standast ákveðin samræmd skilyrði.

Tillögurnar verða nú teknar fyrir í Evrópuþinginu og Evrópuráðinu í samræmi við hefðbundna innleiðingu á löggjöf innan ESB.

250,000 kr. sekt vegna ökuskírteinis stjórnvalda – ,,Stafræn skilríki frá Íslandi, virka ekki“

Stafrænt ökuskírteini gildir aðeins á Íslandi

Stafræn ökuskírteini heimiluð

Ökuskírteini í símann

 

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Líkfundurinn við Borgarnes

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?