Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag er spáð norðvestan og norðan 3-8 m/s. Víða skýjað og nokkuð þungbúið með smásúld eða þokumóðu á köflum og hita 7 til 12 stig. Bjartara og þurrt á Suður- og Suðausturlandi og þar gæti hiti náði upp undir 20 stig þegar best lætur.
Áfram hægur vindur í kortunum á morgun, á þjóðhátíðardaginn. Skýjað sunnantil á landinu með lítilsháttar skúrum. Annars staðar yfirleitt þurrt veður með sólarköflum. Hiti frá 6 stigum við austurströndina, upp í 16 stig á Vesturlandi. Á þriðjudag og miðvikudag er síðan útlit fyrir að lægð sendi regnsvæði yfir landið og því nokkuð blautt og svalt þessa daga. Spá gerð: 16.06.2024 06:46. Gildir til: 17.06.2024 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Norðvestan og norðan 3-8 m/s í dag. Skýjað að mestu og sums staðar smásúld eða þokumóða, hiti 7 til 13 stig. Bjartviðri á Suður- og Suðausturlandi með hita að 20 stigum.
Breytileg átt 3-8 á morgun. Skýjað og lítilsháttar skúrir sunnantil á landinu, annars yfirleitt þurrt og bjart veður. Hiti frá 6 stigum við austurströndina, upp í 16 stig á Vesturlandi.
Spá gerð: 16.06.2024 09:33. Gildir til: 18.06.2024 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skýjað. Fer að rigna seinnipartinn og um kvöldið, fyrst suðvestanlands. Hiti 7 til 13 stig.
Á miðvikudag:
Norðaustan 5-13, en hægari vestlæg átt sunnantil. Súld eða rigning, en dregur úr vætu síðdegis. Hiti 6 til 14 stig, mildast syðst.
Á fimmtudag (sumarsólstöður):
Norðvestlæg átt, skýjað og dálítil rigning við norðurströndina. Skýjað með köflum en yfirleitt þurrt sunnan heiða. Hiti breytist lítið.
Á föstudag:
Austlæg átt, skýjað og að mestu þurrt en rigning sunnanlands um kvöldið. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast suðvestantil.
Á laugardag:
Útlit fyrir austanátt með rigningu.
Spá gerð: 16.06.2024 07:41. Gildir til: 23.06.2024 12:00.