Framboðsteymi Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, óskar eftir styrkjum til að klára að fjármagna kostnaðinn við framboð Katrínar. Fjallað er um málið á vef mbl.is
Bergþóra Benediktsdóttir, sem var kosningastjóri hjá Katrínu og er fyrrverandi aðstoðarmaður hennar, birti færslu í stuðningsmannahópi Katrínar á Facebook í dag þar sem segir í viðtali:
„Nú erum við á lokametrunum við að gera upp framboðið og það vantar herslumuninn til að loka gatinu. Við leitum því til ykkar – ef þið eruð aflögufær og getið hjálpað með því að leggja inn á framboðið væri það afar þakklátt. Við erum mörg hér inni og þetta er fljótt að koma þegar fjöldinn tekur sig til.“
Þekkst hefur að safna þurfi fjármunum í einhvern tíma eftir kosningabaráttu og er þetta því ekki endilega óálgengt. Kosningarnar voru haldnar fyrir tveimur og hálfum mánuði síðan.
Katrín eyðir 100 milljónum í kosningabaráttuna – Útgerðin og auðmenn sagðir borga