• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 13. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

175 milljónir í bætta stjórnsýslu og eftirlit með fiskeldi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. september 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Aukið fjármagn til að bæta stjórnsýslu og eftirlit með fiskeldi og lagfæring á fjármögnun Hafrannsóknastofnunar eru á meðal helstu áherslumála nýs fjárlagafrumvarps, á málefnasviði Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, sem kynnt var á dögunum.
Traustari fjármögnun Hafrannsóknastofnunar
Í frumvarpinu er mælt fyrir um 750 milljón króna framlagi til rannsókna og fjárfestinga. Þar er annars vegar um að ræða 600 milljón króna framlag í byggingu nýs hafrannsóknaskips sem mun stórefla grunnrannsóknir. Alls hefur þá verið varið 900 milljónum króna til þessa verkefnis sem sérstök byggingarnefnd hefur umsjón með. Í síðustu viku skrifuðu Hafrannsóknastofnun og Ríkiskaup undir samning um útboðsvinnu fyrir skipið.
Einnig er um að ræða 150 milljón króna framlag til Hafrannsóknastofnunar vegna samdráttar í framlögum úr Verkefnasjóði sjávarútvegsins til stofnunarinnar. Umræða um stofnunina á undanförnu hefur varpað skýru ljósi á veikleika varðandi það hvernig hún hefur verið fjármögnuð undanfarin ár. Hafrannsóknarstofnun hefur verið mjög háð framlögum úr verkefnasjóði sjávarútvegsins og hafa tekjurnar lækkað mikið á undanförnum árum. Með fjárlagafrumvarpi næsta árs er verið að breyta þessu fyrirkomulagi og tryggja stofnuninni fastar tekjur þannig að Hafrannsóknastofnun verður ekki lengur háð sveiflukenndum tekjustofnum með tilheyrandi óvissu fyrir kjarnastarfsemina.
Á þessu ári fær stofnunin einnig aukin fjárframlög til húsnæðismála, en á næstu mánuðum mun stofnunin koma sér fyrir í nýju húsnæði í Hafnarfirði, þar sem öll starfsemin verður þá undir sama þaki.
175 milljónir í bætta stjórnsýslu og eftirlit með fiskeldi
Í frumvarpinu er að finna 175 milljón króna framlag til bættrar stjórnsýslu, eftirlits og heilbrigðiskrafa í fiskeldi. Þetta framlag verður meðal annars til þess að styrkja eftirlit og stjórnsýslu Matvælastofnunar með fiskeldi. Jafnframt verður það nýtt til að setja á fót rafræna gátt sem ætluð er til að birta opinberlega tilteknar upplýsingar um greinina en slíkar gáttir eru þekktar m.a. í Færeyjum og Noregi. Auk þess má nefna að inn í þessari tölu er gert ráð fyrir auknu fjárframlagi til Umhverfissjóðs sjókvíaeldis en sjóðurinn hefur það meginmarkmið að lágmarka umhverfisáhrif sjókvíaeldis.
Aðgerðaráætlun um m.a. bætta samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu
Í júní síðastliðnum samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun í því skyni að efla matvælaöryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu. Þessi aðgerðaáætlun hefur verið í vinnslu í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu frá því í byrjun síðasta árs og þar er unnið af krafti að framgangi hennar. Helstu áherslur fjárlagafrumvarps næsta árs þegar að kemur að landbúnaðarmálum snúast um að treysta framgang þessara aðgerða sem allar hafa verið fjármagnaðar.
Stjórnsýsla landbúnaðarmála efld
Um næstu áramót taka gildi lög sem samþykkt voru í vor og fela í sér breytingu á stjórnsýslu landbúnaðarmála. Verkefni Búnaðarstofu, sem nú heyrir undir Matvælastofnun, færast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins með breytingunni. Þetta mun efla stjórnsýslu og stefnumótun á sviði landbúnaðar- og matvælamála með fjölgun starfsmanna sem þeim málum sinna í ráðuneytinu. Með þessu er ábyrgð á framkvæmd verkefna í tengslum við framkvæmd búvörusamninga færð á einn stað og leitast við að þróa stjórnsýsluna með skilvirkum hætti. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs eru gerðar ráðstafanir í samræmi við þessa breytingu.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    203 deilingar
    Share 81 Tweet 51
  • Eftirlýst kona handtekin

    74 deilingar
    Share 30 Tweet 19
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    195 deilingar
    Share 78 Tweet 49
  • Hellti bjór yfir slasaðan hjólreiðamann

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Á ekki fyrir mat fyrir barnið sitt – Einstæð móðir á aðeins 459 krónur

    50 deilingar
    Share 20 Tweet 13
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?