• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 3. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hæsta áfengisverð og skattar í Evrópu eru á Íslandi og mun hækka

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. september 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hæsta áfengisverð í Evrópu skýrist af hæstu áfengissköttunum – og enn á að hækka

Áfengi í verslun á Spáni kostar brot af verði í ÁTVR

Íslenskir fjölmiðlar hafa nýlega fjallað um samanburð Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, á áfengisverði í Evrópu. Samkvæmt þeim samanburði er áfengisverð á Íslandi 168% hærra en meðaltalið í Evrópusambandinu, eða hátt í þrefalt meðalverðið.

Eina landið sem kemst nálægt Íslandi hvað áfengisverð varðar er Noregur, en þar er verðið 152% hærra en meðalverðið í ESB. Til samanburðar má nefna að óáfengir drykkir á Íslandi eru 34% dýrari en að meðaltali í ESB.

Á þessum gífurlega verðmun er fyrst og fremst ein skýring; gífurlegir skattar íslenska ríkisins á áfenga drykki.

Samkvæmt samanburði Spirits Europe, samtaka evrópskra áfengisframleiðenda, frá því í byrjun þessa árs, eru langhæstu áfengisskattar í Evrópu á Íslandi, eins og myndin sýnir. Í þessum samanburði er notuð einingin evrur á hektólítra hreins vínanda.

Áfengisskattur á sterkt vín er þannig meira en tvöfalt hærri en í Finnlandi og Svíþjóð, þar sem áfengisverð er hæst af aðildarríkjum ESB. Áfengisgjald á bjór er þriðjungi hærra en í Finnlandi og meira en tvöfalt hærra en í Svíþjóð. Áfengisskatturinn á léttvín er tæplega tvöfalt hærri en í Finnlandi og nærri þrefalt hærri en í Svíþjóð.

Mörg Evrópuríki leggja raunar ekkert áfengisgjald á léttvín eins og sjá má, heldur aðeins virðisaukaskatt. Þrátt fyrir að virðisaukaskattur á áfengi sé lægri hér (11%) en í flestum Evrópuríkjum, er samanlögð skattlagning á áfengi langsamlega mest hér á landi. Eina undantekningin sem finnst er að samanlagt áfengisgjald og virðisaukaskattur á bjór er hærra í Noregi en hér á landi.

Óáfengir drykkir eru 34% dýrari á Íslandi en að meðaltali í ESB en áfengir 168% dýrari. (Heimild: Eurostat)

Óáfengir drykkir eru 34% dýrari á Íslandi en að meðaltali í ESB en áfengir 168% dýrari. (Heimild: Eurostat) Smelltu á myndina til að stækka hana.

Lagt til að bæta í Evrópumetið

Áfengi í verslun t.d. á Spáni kostar brot af verði í ÁTVR

Í fjárlagafrumvarpi ársins 2020 á Alþingi, var lagt til að bæta enn í Evrópumetið og hækka áfengisgjald um 2,5%. Það þýðir til dæmis að þriggja lítra kassi af 13,5% rauðvíni, sem kostar í dag rétt tæpar 7.000 krónur, hækkar um 119 krónur.

Þá er ekki búið að taka tillit til þeirrar hækkunar á álagningu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins sem boðuð er í fjárlagafrumvarpinu.

Enn hefur ekki komið fram hversu mikið álagning ÁTVR verður hækkuð og hefur fjármálaráðuneytið ekki svarað fyrirspurnum Félags atvinnurekenda þar um.

Komin langt fram úr öðrum ríkjum

„Skattlagning á áfengum drykkjum á Íslandi er komin út fyrir öll velsæmismörk,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA. „Við erum komin langt fram úr þeim ríkjum sem leggja hæsta skatta á áfenga drykki undir yfirskini lýðheilsusjónarmiða.

Það virðast engin takmörk fyrir því hvað stjórnmálamenn eru tilbúnir að skattpína kaupendur þessarar einu neysluvöru, eins og sífelldar hækkanir áfengisgjaldsins sýna og nú síðast áform um hækkun á álagningu ÁTVR.

Vegna þess að áfengisgjaldið er föst krónutala á einingu áfengis, hafa hækkanir á því mest áhrif á ódýrustu tegundirnar og koma þannig harðast niður á þeim sem minnst hafa handa á milli.

Þetta er stefna sem bitnar bæði á lífskjörum almennings og ferðaþjónustunni í landinu, enda trúa útlendingar varla sínum eigin augum þegar þeir koma í vínbúð eða á veitingastað og sjá verðið á áfengi. Við höfum talað fyrir daufum eyrum undanfarin ár, en teljum samt ástæðu til að spyrja enn og aftur: Ætlar enginn stjórnmálamaður að segja stopp; að nú sé komið nóg af þessari fáránlegu skattagleði?“ Fyrst birt: 16.09. 2019 kl. 16:46

Áfengisskattar í Evrópu – excelskjal

‹ Stjórn FA: Gera þarf betur í lækkun tryggingagjalds – áfengishækkanir gagnrýndar
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    545 deilingar
    Share 218 Tweet 136
  • Ný launareiknivél

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • ,,No borders hafa flúið“ – Þögn vegna ótta : Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Covid-bóluefnin eru þau hættulegustu sem finnast segir hjartalæknir

    111 deilingar
    Share 44 Tweet 28
  • Græðgin er komin út fyrir öll mörk – Launaþjófnaður?

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?