Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með til rannsóknar andlát stúlku á grunnskólaaldri.
Tilkynnt var um málið um kvöldmatarleytið í gær og í kjölfarið var einn handtekinn í tengslum við það.
Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.
Uppfært: Karlmaður er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu grunaður um manndráp í gær. Í tilkynningu frá lögreglu segir að stúlka á grunnskólaaldri sé látin.
Maðurinn var handtekinn á Krýsuvíkursvæðinu í gær eftir að hafa sjálfur hringt á lögreglu, samkvæmt heimildum fréttastofu. Stúlkan fannst þar sömuleiðis. Þar voru miklar lögregluaðgerðir fram eftir kvöldi. Lögregla segir að tilkynnt hafi verið um málið um kvöldmatarleytið.
Umræða