Brot 781 ökumanna voru mynduð og mega þeir búast við háum sektum
Brot 752 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá föstudeginum 5. september til mánudagsins 15. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Grensásveg.
Á tíu sólarhringum fóru 47.238 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 104. Þrjátíu og fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Brot 29 ökumanna voru mynduð í Álfheimum í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfheima í suðurátt, að Ljósheimum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 124 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46.
Vöktun lögreglunnar er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.

