• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fleiri einstaklingar búa þröngt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. desember 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hlutfallslega fleiri búa þröngt Hlutfall einstaklinga sem býr við þröngbýli hefur hækkað síðastliðin ár. Árið 2018 bjuggu 14,1% einstaklinga þröngt sem er mun hærra borið saman við 10,9% árið 2017 og 7,8% árið 2016. Hlutfall einstaklinga sem býr þröngt hefur hækkað á öllum aldri en sérstaklega á aldrinum 25-34 ára þar sem 24,0% bjuggu við þröngbýli árið 2018 en 15,6% árið 2017. Ef litið er á tekjufimmtunga varð mesta breytingin á milli 2016 og 2018 hjá þeim sem eru í lægsta tekjubilinu, en árið 2016 bjuggu 14,3% einstaklingar á heimili við þröngbýli en 30,2% árið 2018.
Þessi þróun virðist ekki eiga sér stað í öðrum Evrópulöndum. Samanborið við Norðurlöndin er hlutfallið á Íslandi svipað og í Svíþjóð en það er mun hærra en á hinum Norðurlöndunum. Árið 2018 var hlutfallið 15,2% í Svíþjóð, 6,0% í Noregi, 9,2% í Danmörku og 7,3% í Finnlandi. Sjá nánar á vef Eurostat.
Hlutfall einstaklinga sem búa þröngt eftir tekjufimmtungum
Þröngbýli
Notast er við alþjóðlega skilgreiningu evrópsku Hagstofunnar á þröngbýli. Þröngbýli er reiknað út frá fjölda herbergja og samsetningu heimilisfólks. Hvert heimili þarf eitt herbergi sem er sameiginlegt fyrir allt heimilisfólk, eitt herbergi fyrir hvert par á heimilinu, eitt herbergi fyrir hvern einhleypan einstakling 18 ára og eldri, eitt herbergi fyrir hverja tvo einstaklinga 12-17 ára af sama kyni og eitt herbergi fyrir hverja tvo einstaklinga undir 12 ára aldri.
Tengsl milli aldurs einstaklinga og gæði húsnæðis
Frá árinu 2015 hefur hlutfall einstaklinga sem segjast búa í húsnæði í lélegu ástandi staðið nokkurn veginn í stað. Árið 2017 var hlutfallið 19,8% en 19,2% árið 2018. Lítill munur er á milli kynja en marktækur munur er á aldri. Hlutfall einstaklinga 35-44 ára sem segist búa í húsnæði í lélegu ástandi var 23,9% árið 2018 en lægst var hlutfallið fyrir einstaklinga 65 ára og eldri eða 8,9%.
Þetta er meðal nýrra niðurstaðna úr Lífskjararannsókn Hagstofu Íslands. Niðurstöðurnar byggja á svörum fólks við því hvort það eigi í vandræðum með þakleka, raka eða fúa í veggjum, gólfi eða gluggum. Sé svarað játandi telst viðkomandi til þeirra sem segjast búa við lélegt ástand húsnæðis.
Hlutfall einstaklinga sem segjast búa í húsnæði í lélegu ástandi 2004-2018
Um gögnin
Niðurstöðurnar eru unnar úr lífskjararannsókn Hagstofu Íslands. Lífskjararannsókn Hagstofunnar er langsniðsrannsókn þar sem haft er samband við hátt í 5 þúsund heimili árlega. Frekari upplýsingar um lífskjararannsóknina má lesa í lýsigögnum. Niðurstöður fyrir árið 2018 eru bráðabirgðatölur.
Talnaefni

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?