• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 11. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Opið bréf til Björgólfs Jóhannssonar, starfandi forstjóra Samherja

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. desember 2019
in Fólk, Innlent
A A
0

Opið bréf til Björgólfs Jóhannssonar, starfandi forstjóra Samherja

Sæll Björgólfur

Kristinn Hrafnsson, Ritstjóri WikiLeaks skrifar opið bréf til Björgólfs Jóhannssonar hjá Samherja

Athygli mín var vakin á bréfi sem þú sendir starfsmönnum Samherja og birtist á vef fyrirtækisins 5. desember s.l. Þar gerir þú að umtalsefni að Jóhannes Stefánsson hafi ekki afhent WikiLeaks nema hluta af tölvupóstum sínum úr vinnutölvu sem hann hafði. Þetta er rangt.
WikiLeaks hefur fleiri pósta en þá sem þegar eru birtir en megináhersla var lögð á að birta strax þau gögn sem lágu til grundvallar greiningarvinnu þeirra blaðamanna, íslenskra og erlendra, sem unnið hafa fréttir á grunni gagnanna mánuðum saman.
Þá strax var gefið út að WikiLeaks ætti eftir að birta fleiri gögn.
Kristinn Hrafnsson, Ritstjóri WikiLeaks skrifar opið bréf til Björgólfs Jóhannssonar hjá Samherja

Ég tók einnig þá ákvörðun að láta sigta út úr tölvupóstum og gögnum það sem ég taldi óþarfi að birta þar sem fjallað var meðal annars um nokkuð persónuleg mál núverandi og fyrrverandi starfsmanna Samherja, upplýsingar eins og launagreiðslur, atvinnuleyfi með ítarupplýsingum, skönnuð vegabréf og fleira í þeim dúr. Hugmyndin að þessu var tillitssemi við almenna starfsmenn fyrirtækisins sem ég er viss um að eru upp til hópa sómafólk.
Í þeim gögnum sem enn eru óbirt eru einnig upplýsingar um rekstrarþætti sem teljast ekki óeðlilegir svo sem viðskipti við birgja, söluaðila ogsvfrv.
Það er erfitt að lesa orðsendingu þína til starfsmanna öðruvísi en sem hvatningu til WikiLeaks að birta öll þau gögn sem óbirt eru. Það er raunar ekkert því til fyrirstöðu en þó vildi ég fyrst ganga úr skugga um að þú hefðir afdráttarlausan stuðning og heimild núverandi og fyrrverandi starfsmanna svo og viðskiptamanna Samherja til að leggja fram slíka hvatningu eða beiðni.
Þú lætur mig kannski vita afdráttarlaust hvort sú er raunin.
Eins er gert tortryggilegt að það vanti tímabil í tölvupósta Jóhannesar. Það er alveg mögulegt að einhverjir póstar hafi ekki hlaðist niður við uppfærslu af móðurtölvu Samherja á sínum tíma.
Úr þessu má að sjálfsögðu bæta með því að Samherji láti okkur hafa alla þá pósta sem stafa frá og til vinnunetfangs Jóhannesar. Með því má bera saman gögnin og bæta svo þeim gögnum inn sem kunna að vanta í gagnagrunn Fishrot Files (Samherjaskjölin) þar sem þau verða þá greinanleg í leitarvél.
Þetta er þjónusta sem sjálfsagt er að veita fyrirtækinu og almenningi öllum, en vitaskuld með sömu formerkjum og að ofan greinir.
Hægt er að koma þessum gögnum til mín á USB lykli eða hreinlega með því að hlaða þeim niður á wikileaks.org/#submit.
Það er örugglega þekking innan fyrirtækisins til að koma gögnunum með þessum hætti til okkar því þetta er ekki flóknara en að hlaða myndbandsupptöku á youtube.
m.kv.  Kristinn Hrafnsson. Ritstjóri WikiLeaks
https://gamli.frettatiminn.is/2019/12/14/bjorgolfur-segir-fangelsun-stjornmalamanna-i-namibiu-ekki-vegna-mutugreidslna-fra-samherja/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    67 deilingar
    Share 27 Tweet 17
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?