• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 20. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Starfsemi Mílu í ljósi þjóðaröryggishagsmuna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. desember 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Á fundi sínum hinn 11. október sl. fól ríkisstjórn Íslands samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu að leiða viðræður við Símann hf. um leiðir til að tryggja að starfsemi Mílu ehf. samrýmist þjóðaröryggishagsmunum komi til sölu til erlendra fjárfesta.

Í kjölfar tilkynningar Símans hf. hinn 23. október sl. um fyrirhugaða sölu á Mílu ehf. hafa fulltrúar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins átt í viðræðum við fulltrúa Símans, Mílu og Ardian France SA, um leiðir til að tryggja að starfsemi Mílu samrýmist þjóðaröryggishagsmunum í kjölfar sölunnar.

Viðræðum er nú lokið og fyrir liggur undirritaður samningur milli vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, fh. íslenska ríkisins, og Mílu ehf. um kvaðir vegna þjóðhagslega mikilvægra fjarskiptaneta Mílu, í samræmi við áherslur stjórnvalda. Á fundi sínum hinn 14. desember staðfesti ríkisstjórnin samninginn fyrir sitt leyti. Í samningnum koma fram atriði er varða viðskiptahagsmuni Mílu og verður hann af þeim sökum ekki gerður opinber, sbr. 9. gr. upplýsingalaga.

Á gildistíma samningsins gefst stjórnvöldum tími til að lögfesta almenn ákvæði er varða þær kvaðir sem Míla undirgengst í samningnum. Í því sambandi má, auk frumvarps til laga um breytingar á lögum um fjarskipti, lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri sem nú er til meðferðar á Alþingi, vísa til fyrirhugaðrar framlagningar frumvarps til nýrra heildarlaga um fjarskipti og fyrirhugaðs frumvarps til laga um rýni fjárfestinga erlendra aðila í þýðingarmiklum samfélagsinnviðum og tengdri starfsemi vegna þjóðaröryggis.

Samhliða viðræðunum fór fram upplýsingaöflun starfshóps fjögurra ráðuneyta sem var af ríkisstjórninni falið að afla upplýsinga um viðskiptin m.a. í þeim tilgangi að hægt yrði að meta hvort viðskiptin fælu í sér ógn við öryggi landsins eða allsherjarreglu o.s.frv. í skilningi 2. mgr. 12. gr. laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Samkvæmt ákvæðinu er ráðherra heimilt að stöðva erlenda fjárfestingu innan átta vikna frá því honum barst vitneskja um hana ef talið er að fjárfestingin kunni að ógna öryggi landsins eða ganga gegn allsherjarreglu. Starfshópurinn aflaði ítarlegra upplýsinga um viðskiptin og um erlenda fjárfestinn, í þessu tilviki Ardian France SA, og leitaði til viðeigandi aðila eftir frekari gögnum og sjónarmiðum.

Greining þeirra upplýsinga sem var aflað hefur leitt til þeirrar niðurstöðu að erlendi fjárfestirinn sem slíkur er ekki talinn fela í sér ógn við öryggi landsins. Greinargerð starfshópsins varðar mat á öryggishagsmunum ríkisins og upplýsingum þeim tengdum og verður af þeim sökum ekki gerð opinber, sbr. 1. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Greinargerðin verður þó að sjálfsögðu kynnt nefndarmönnum þingnefndar sem hefur ofangreint frumvarp til laga um breytingar á lögum um fjarskipti, lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri til meðferðar. Við mat á því hvort beita ætti heimild 2. mgr. 12. gr. laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri skipti mestu máli að samkomulag náðist við Mílu og Ardian France SA um leiðir til að tryggja að starfsemi Mílu samrýmist þjóðarhagsmunum.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Neituðu að taka niður upplogna níðgrein um meint barnaníð

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Líshættuleg líkamsárás er Palestínumenn og Íslendingar hittust

    67 deilingar
    Share 27 Tweet 17
  • ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    113 deilingar
    Share 45 Tweet 28
  • Setja pólitíska hagsmuni sína í fyrsta sæti

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?