Hugleiðingar veðurfræðings
Vaxandi norðvestanátt og snjókoma með köflum á austanverðu landinu í dag, hvassviðri eða stormur austast síðdegis. Vestan gola eða kaldi vestantil og þar gengur á með lítilsháttar éljum. Vægt frost inn til landsins en víða frostlaust við ströndina. Á morgun lægir smám saman fyrir austan. Sums staðar él, einkum við suðurströndina, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Frost 0 til 8 stig. Vaxandi sunnan- og suðaustanátt um kvöldið, víða stormur með talsverðri rigningu og ört hlýnandi veðri aðfaranótt sunnudags.
Spá gerð: 17.01.2020 06:35. Gildir til: 18.01.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Vaxandi norðvestanátt og snjókoma með köflum á A-verðu landinu í dag, 15-23 m/s síðdegis, hvassast SA-til. Mun hægari og dálítil él V-lands. Frost 0 til 5 stig, en víða frostlaust við sjóinn. Minnkandi vestanátt á morgun og sums staðar él á S- og V-landi, annars bjart með köflum. Vaxandi suðaustanátt með slyddu eða rigningu S- og SV-lands seint annað kvöld.
Spá gerð: 17.01.2020 04:39. Gildir til: 18.01.2020 00:00.
Gul viðvörun á öllu landinu
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Sunnan 18-25 m/s og talsverð rigning um morguninn, en úrkomuminna NA til, hvassast N-lands,. Hiti 2 til 10 stig. Snýst í suðvestan 13-20 með skúrum eða slydduéljum síðdegis og kólnar, hvassast við SV-ströndina, en þurrt á A-landi.
Á mánudag:
Suðvestanhvassviðri og éljagangur, en bjartviðri A-lands. Hiti kringum frostmark.
Á þriðjudag:
Suðvestanátt og dálítil él, en bjartviðri eystra. Vaxandi S-átt og fer að rigna S- og V-lands um kvöldið.
Á miðvikudag:
Stíf suðvestanátt og rigning og skúrir eða él með kvöldinu, en úrkomulítið NA-lands. Milt veður fram eftir degi.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir hvassa suðvestanátt með éljum og kólnandi veðri.
Spá gerð: 17.01.2020 08:09. Gildir til: 24.01.2020 12:00.