Hugleiðingar veðurfræðings
Austan og norðaustan 13-20 og víða snjókoma sunnantil í kvöld. Norðlæg átt, 3-10 m/s og smáél við norðurströndina. Dregur smám saman úr vindi og ofankomu sunnanlands á morgun, fyrst vestantil. Norðan 8-13 og snjókoma fyrir norðan annað kvöld. Frost 0 til 10 stig en frostlaust allra syðst.
Hríðarviðvaranir fyrir Suður- og Suðausturland.
Höfuðborgarsvæðið er í jaðrinum á snjókomubakkanum sem kemur úr suðri og má búast við snjókomu í höfuðborginni fyrir miðnætti og fram yfir hádegi.
Á fimmtudag og föstudag, snjókoma eða él fyrir norðan og smáél um helgina en bjartviðri fyrir sunnan. Áfram kalt í veðri. Spá gerð: 17.02.2026 15:46. Gildir til: 19.02.2026 00:00.
https://www.vedur.is/vidvaranir
Veðurhorfur á landinu
Austan og norðaustan 13-20 og víða snjókoma sunnantil í kvöld. Norðlæg átt, 3-10 m/s og smáél við norðurströndina.
Dregur smám saman úr vindi og ofankomu sunnanlands á morgun, fyrst vestantil. Norðan 8-13 og snjókoma fyrir norðan annað kvöld. Frost 0 til 10 stig en frostlaust allra syðst.
Spá gerð: 17.02.2026 15:36. Gildir til: 19.02.2026 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag og föstudag:
Norðan 5-13 m/s. Snjókoma eða él um landið norðanvert en skýjað með köflum sunnantil. Frost 1 til 15 stig, kaldast inn til landsins.
Á laugardag og sunnudag:
Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s. Smáél fyrir norðan og austan en annars víða léttskýjað. Frost 0 til 15 stig en frostlaust allra syðst yfir daginn.
Á mánudag:
Norðaustan 5-15, hægast norðaustantil. Snjókoma eða slydda sunnan- og vestanlands en annars él. Frostlaust við suðurströndina en annars vægt frost.
Spá gerð: 17.02.2026 08:37. Gildir til: 24.02.2026 12:00.

