• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameiningu

fjármála- og efnahagsráðherra. Daði Már Kristófersson

Hraðari uppbygging samgönguinnviða með innviðafélagi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um stofnun innviðafélags í eigu ríkisins sem ætlað er að hraða uppbyggingu stórra og þjóðhagslega mikilvægra samgönguverkefna. Markmiðið er að skapa skýra og sjálfbæra umgjörð um fjármögnun og framkvæmd samgöngumannvirkja.

Starfar á sjálfbærum fjárhagslegum grunni

Lagt er til að innviðafélagið verði opinbert hlutfélag í eigu ríkisins sem annist fjármögnun, þróun, uppbyggingu og rekstur tiltekinna samgönguinnviða á grundvelli samninga við innviðaráðuneytið. Félagið starfi á sjálfbærum fjárhagslegum grunni og fjármagni framkvæmdir með veggjöldum og lántöku á markaði. Horft er til reynslu nágrannalanda sem hafa stofnað sérstök innviðafélög í sama tilgangi.

Unnið á innviðaskuld í samgöngum

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að auka fjárfestingar í samgöngum og hefja kraftmiklar framkvæmdir um allt land ásamt því að rjúfa kyrrstöðu í jarðgangagerð og vinna á viðhaldsskuld í vegakerfinu. Stofnun innviðafélags er lykill að því markmiði.

Með stofnun sérstaks félags sem starfar á sjálfbærum grunni er horft til þess að mikilvæg innviðauppbygging raungerist í samgöngumálum sem að öðrum kosti yrði ekki að veruleika. Aukin áhersla verður jafnframt á að framkvæmdaverkefni verði innan kostnaðar- og tímaramma og mun fjármagnsskipan félagsins taka mið af því.

Meðal ávinnings af því að flýta samgönguframkvæmdum er aukið umferðaröryggi, stytting umferðarleiða og bætt tenging milli byggða og atvinnusvæða til hagsbóta fyrir íbúa og fyrirtæki um allt land.

„Við vitum öll að það er verk að vinna þegar kemur að samgöngumálum. Með þessu frumvarpi erum við að leggja til nýja aðferðafræði til þess að takast á við brýn og stór innviðaverkefni,“ segir fjármála- og efnahagsráðherra.“

Frumvarpið fær nú þinglega meðferð en vonast er til að hægt verði að koma félaginu á fót um mitt þetta ár þannig að það geti strax hafið undirbúning á þeim verkefnum sem færð verða til félagsins. Er í því samhengi einkum horft til Sundabrautar, Fljótaganga og fjármögnunar Ölfusárbrúar.

  • Ferill máls á vef Alþingis
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Dómgreindarleysi að ætla að stökkva úr Stjórnarráðinu á Bessastaði“

    ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Hvað kom fyrir Vilhjálm Birgisson verkalýðsleiðtoga?

    129 deilingar
    Share 52 Tweet 32
  • ,,Hræðsluáróðri hefur verið beitt eins og svipu“

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Hvert fóru þessir 23 milljarðar?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Næsta lægð er væntanleg

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?