Forsvarsmenn samtaka um karlaathvarf fordæma ummæli sem Hallgrímur Helgason birti um frambjóðanda Miðflokksins sem hefur ekki hlotið neinn dóm fyrir meint kynferðisbrot. Hallgrímur kýs samt sem áður að fjalla um einstaklinginn opinberlega fyrir alþjóð og með berum orðum og fullyrðingu eins og um væri að ræða dæmdan kynferðisbrotamann
Hallgrímur ritar opinberar fullyrðingar um einstaklinga og Miðflokkinn sem sjá má hér að neðan, ekki liggur fyrir hvort höfðað verði meiðyrðamál gegn Hallgrími.
,,Þetta er nýja íhaldið, ískalt og grímulaust, alveg laust við virðuleg leiktjöld gamla íhaldsins, menningarlaust, rasískt og eineltisríkt, með Wintris í vasanum og alltaf til í málþóf fyrir milljarðamæringana okkar, vill konurnar aftur inn í eldhús og setur kynferðisbrotamanninn í fyrsta sæti,“ skrifar Hallgrímur og lét hann fylgja með mynd af leiðtogum flokksins.“
Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni

Í siðmenntuðu samfélagi á enginn einstaklingur að þurfa að þola það að vera sagður kynferðisbrotamaður án þess að haldbær gögn liggi slíku til staðfestingar og mál hans fari í formlegan farveg. Ef máli er vísað frá er algjörlega ótækt að múgurinn haldi áfram að veitast að einstaklingi með fullyrðingum um sekt.
Einstaklingar verða að eiga möguleika á réttlátri málsmeðferð þegar þeir eru ásakaðir um glæpi. Annars verða ásakanir vopn í höndum illa innrætts fólks, sem mun ráðast að saklausum einstaklingum til að koma höggi á þá. Eða fjárkúga þá.
Ummæli Hallgríms varða við lög, fullyrðing um hegningarlagabrot teljast meiðandi ummæli, en dómstólar hafa algjörlega brugðist hlutverki sínu og ekki varið einstaklinga fyrir slíku níði, hvorki með réttmætum miskabótum né dómum í samræmi við lög.
Ritar Hallgrímur langan rantpistil sem endar á orðunum: „… og setur kynferðisbrotamanninn í fyrsta sæti.“ Birtir hann svo mynd af einstaklingum úr Miðflokknum, en kæru á hendur fulltrúa flokksins í borginni var vísað frá.
Það þýðir að ekkert liggur fyrir sem getur staðfest sekt einstaklings og þannig algjörlega ótækt að slíkar fullyrðingar séu settar fram. En aftökusveit dómstóls götunnar er enn að störfum og lætur ekki segjast.

