• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 14. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stærsta ritskoðun þýskra yfirvalda síðan í seinni heimsstyrjöldinni

Stærsta ritskoðun þýskra yfirvalda síðan í seinni heimsstyrjöldinni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. júlí 2024
in Erlent, Fréttir
A A
0

Þegar boltinn rúllar í Þýskalandi, þá rúllar hann hratt. Á þriðjudaginn gerði þýska lögreglan aðför að einum stærsta valkosta fréttamiðli í Þýskalandi, Compact, samkvæmt skipun rauðgrænu ríkisstjórnar Þýskalands. Yfir 200 lögreglumenn flestir grímuklæddir gerðu rassíu á skrifstofu blaðsins og heimili útgefandans Jürgen Elsässer ásamt heimilum starfsmanna og fjárstyrktaraðila.

Þungt högg gegn „öfgahægri mönnum“

Innanríkisráðherra jafnaðarmanna í Þýskalandi, Nanxy Faeser, tilkynnti ákvörðunina á X. Hún er sjálf í góðum félagsskap öfga vinstra liðsins í Antifa sem vill banna alla hægri flokka í Þýskalandi. Hún skrifaði:

„Í dag bannaði ég hægriöfgatímaritið Compact. Tímaritið æsir á óumræðilegan hátt gegn gyðingum, gegn múslimum og gegn lýðræði okkar. Bann okkar er þungt högg gegn umhverfi öfgahægri aflanna.“

Óopinbert málgagn Valkosts fyrir Þýskaland

Compact kemur út einu sinni í mánuði og var stofnað af blaðamanninum Jürgen Elsässer ár 2010. Tímaritið kemur út í 40 þúsundum eintaka og hefur orðið að einum stærsta valkostamiðli í Þýskalandi. YouTube rás tímaritsins hefur 347 000 áskrifendur. Heimildarmynd sem Compact framleiddi um hryðjuverkið á Nord Stream gasleiðslunum hefur verið skoðað yfir milljón sinnum.

Jürgen Elsässer á mörg ár að baki sem blaðamaður og var fyrir aldamót ritstjóri og aðstoðarritstjóri vinstri blaðanna „Junge Welt“ og „Konkret.“ Compact hefur engu að síður orðið óopinbert málgagn Valkosts fyrir Þýskaland, AfD.

Víðtækasta takmörkun fjölmiðlafrelsis frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar

Lagalega beita Nancy Faeser og rauðgræna ríkisstjórnin félagalögum landsins fyrir sig. Samkvæmt þeim er heimilt að banna félög, fyrirtæki og sjóði ef þau „stríða gegn stjórnskipunarreglunni eða meginreglunni um alþjóðlega samstöðu.“

Þýska ríkisstjórnin sakar Compact um að ganga gegn „frjálsu lýðræðisskipulagi“ með stöðugum greinum sem gagnrýna ríkisstjórnina.

Öfgavinstrið sem umlykur rauðgrænu hlið þýsku ríkisstjórnarinnar fagnar lokun stjórnarandstöðublaðsins. Á samfélagsmiðlum lýsa þúsundir manna áhyggjum af því, að stjórnvöld séu að senda lögregluna á óþægilega blaðamenn og leggja niður dagblað sem gagnrýnir ríkisstjórnina. Lokuninni er lýst sem víðtækustu takmörkun á fjölmiðlafrelsi í Þýskalandi frá síðari heimsstyrjöldinni.

Related

Þýskaland notar brúnkol eftir lokun kjarnorkuvera

Miðsumar – stærsta fjölskylduhátíð Svíþjóðar

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    226 deilingar
    Share 90 Tweet 57
  • Helgi Pétursson látinn

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?