• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkisendurskoðandi tilkynntur til lögreglu – Er ekki löggiltur endurskoðandi

Ríkisendurskoðandi tilkynntur til lögreglu – Er ekki löggiltur endurskoðandi

Skrifstofa Alþingis ætlar ekkert að aðhafast og lögregla og ráðuneyti svara ekki fyrirspurnum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. september 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ríkisendurskoðandi áritar ársreikninga ríkisfyrirtækja án þess að vera löggiltur endurskoðandi – Ferilskrá er hér að neðan

Fjallað er ítarlega um málið á vef ríkisútvarpsins og þar segir að heimild hans til þess er umdeild. ,,Hann telur heimild sína óvéfengjanlega en endurskoðendaráð, sem sinnir gæðaeftirliti með störfum endurskoðenda, hefur vísað málinu til lögreglu og Félag löggiltra endurskoðenda hefur vísað málinu til atvinnuvegaráðuneytisins og til ESA, eftirlitsstofnunar EFTA-dómstólsins.

Ákvæði um að ríkisendurskoðandi skyldi vera löggiltur endurskoðandi var fellt úr lögum um ríkisendurskoðanda með breytingu á lögunum 2016. Í greinargerð með frumvarpinu segir um 21. grein, sem fjallar um gildissvið laganna gagnvart lögum um endurskoðun, að ekki sé gert ráð fyrir því að ríkisendurskoðandi sinni sjálfur endurskoðun. Í greinargerðinni segir einnig að viðbúið væri að lítið myndi reyna á ákvæðið í framkvæmd.

Guðmundur Björgvin Helgason, sem kosinn var ríkisendurskoðandi til sex ára af Alþingi frá 2022, er annar ríkisendurskoðandi til að gegna embættinu án þess að hafa starfsleyfi sem endurskoðandi, en sá fyrsti sem áritar ársreikninga ríkisfyrirtækja án þess að löggiltur endurskoðandi sem starfar hjá embættinu áriti með honum.

Þrír starfsmenn Ríkisendurskoðunar sviptir starfsleyfi

Endurskoðendaráð svipti þrjá starfsmenn ríkisendurskoðanda starfsleyfi sem löggiltir endurskoðendur tímabundið eftir að þeir árituðu ársreikninga þriggja ríkisfyrirtækja í fyrra en neituðu, með vísan í afstöðu ríkisendurskoðanda, að afhenda endurskoðendaráði gögn.

Síðan þá hefur Guðmundur Björgvin ríkisendurskoðandi áritað ársreikningana einn. Hann segist gera það því ríkisendurskoðandi eigi að bera fulla ábyrgð á árituninni. Þá vilji hann ekki setja starfsfólk sitt í skotlínu endurskoðendaráðs, eins og hann orðaði það í samtali við fréttastofu ríkisútvarpsins.“

Hér er hægt að skoða ferilskrá ríkisendurskoðanda og menntun

Umræða
Share4Tweet3
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun um eldgos á Tenerife

    Óttast eldgos á Tenerife

    157 deilingar
    Share 63 Tweet 39
  • Sturluð staðreynd

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Mikilvægar upplýsingar um berkla og berklasmit

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Leigja tonnið á 500.000 kr. og greiða 0 kr. í auðlindagjald og 0 kr. í vsk

    155 deilingar
    Share 62 Tweet 39
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?