• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 12. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ása Ólafsdóttir og Björg Thorarensen skipaðar í embætti dómara við Hæstarétt Íslands

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. nóvember 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Ása Ólafsdóttir og Björg Thorarensen verði skipaðar dómarar við Hæstarétt Íslands frá 23. nóvember 2020.

Ása Ólafsdóttir lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1996 og framhaldsnámi í lögfræði frá Cambridge-háskóla árið 2000. Hún starfaði að námi loknu sem lögmaður um árabil og hefur flutt fjölda mála fyrir dómstólum. Hún öðlaðist málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti Íslands árið 2005. Frá árinu 2008 hefur Ása lengst af gegnt fullu starfi við lagadeild Háskóla Íslands, þar af sem dósent frá árinu 2012 og prófessor frá 2018. Þá hefur hún sinnt umfangsmiklum fræðastörfum, einkum á sviði fjármunaréttar og réttarfars. Ása var settur dómari við Landsrétt 25. febrúar –  30. júní 2020 og að auki hefur hún sinnt fjölmörgum öðrum störfum, svo sem formennsku í gjafsóknarnefnd og óbyggðanefnd, og átt aðkomu að samningu fjölda lagafrumvarpa.

Björg Thorarensen lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1991 og framhaldsnámi í lögfræði frá Edinborgarháskóla árið 1993. Hún starfaði í dómsmálaráðuneytinu um árabil að námi loknu, þar af sem skrifstofustjóri um sex ára skeið. Frá árinu 2002 hefur Björg verið prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og samhliða því sinnt umfangsmiklum fræðastörfum, einkum á sviði stjórnskipunaréttar og mannréttinda, en einnig á sviði þjóðaréttar, persónuverndarréttar, stjórnsýsluréttar og sakamálaréttarfars. Björg var settur dómari við Landsrétt 1. janúar – 30. júní 2020 og að auki hefur hún sinnt fjölmörgum öðrum störfum, þ. á m. sem umboðsmaður ríkisstjórnar Íslands við Mannréttindadómstól Evrópu og sem formaður stjórnar Persónuverndar  um árabil.

Umræða
Share24Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fallist á kröfur lögreglustjóra um gæsluvarðhald

    Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    60 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • LEB telur gliðnun á milli launa og grunnlífeyris vera með öllu óþolandi

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • Stjórn Nemendafélags Háskólans á Bifröst lítur brotin alvarlegum augum

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Handtekinn fyrir ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni í Kópavogi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Frost um allt land

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?