• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 23. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Umbætur í verkefnastjórnsýslu og opinberum fjárfestingum

Helgi Gunnarsson, formaður Verkfræðingafélagsins, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra og Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, undirrituðu samkomulagið.

Umbætur í verkefnastjórnsýslu og opinberum fjárfestingum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. nóvember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skrifað undir samkomulag við Háskólann í Reykjavík og Verkfræðingafélag Íslands um nýjan samráðsvettvang um verkefnastjórnsýslu og opinberar fjárfestingar. Tilgangurinn er að efla samstarf milli ráðuneytisins, HR og Verkfræðingafélagsins á þessu sviði, stuðla að þróun bestu starfsvenja í stjórnsýslu, tengja saman þekkingu og draga fram bestu aðferðir.

Fimm fulltrúar skipa samráðsvettvanginn og eru þrír þeirra valdir af fjármála- og efnahagsráðherra, og einn frá HR og einn frá Verkfræðingafélaginu. Samkomulagið gildir til ársloka 2027.

„Fjárfestingar á vegum hins opinbera eru umfangsmiklar og margvíslegar. Til þeirra renna miklir fjármunir og mikilvægt að allar ákvarðanir, frá upphafi til enda, séu vandaðar og yfirvegaðar.” segir Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra og heldur áfram „frá mínum sjónarhóli sem fjármálaráðherra er því til mikils að vinna að ávallt sé beitt bestu aðferðum í stjórnsýslu, sérstaklega í undirbúningi, mati, fjármögnun, framkvæmd og eftirfylgni opinberra fjárfestingarverkefna. Samráðsvettvangurinn er hugsaður sem mikilvægt verkfæri í því verkefni. Ég er afar ánægður með að við vinnum að þessu með Háskólanum í Reykjavík og Verkfræðingafélagi Íslands“.

Samkomulagið var auk fjármálaráðherra undirritað af Ragnhildi Helgadóttur rektor Háskólans í Reykjavík og Helga Gunnarssyni formanni Verkfræðingafélags Íslands.

/lisalib/getfile.aspx?itemid=8c1bd519-c3a3-11f0-b897-005056bcde1f

Helgi Þór Ingason, Svana Helen Björnsdóttir, Hermann Sæmundsson, Katrín Oddsdóttir, Gunnar Sigurðsson, Helgi Gunnarsson, Daði Már Kristófersson og Ragnhildur Helgadóttir. 

Hlutverk samráðsvettvangsins er:

  1. Að miðla þekkingu á sviði verkefnastjórnar, fjárfestingarmats og gæðamats.
  2. Að meta kosti og galla verkefnastjórnsýslukerfa og rannsaka hvað gæti hentað fyrir íslenska stjórnsýslu.
  3. Að leggja mat á hvernig akademísk þekking og rannsóknir geti nýst við stefnumótun og framkvæmd opinberra fjárfestinga.
  4. Að fjalla um tækifæri til sameiginlegra rannsókna, fræðslu, útgáfu rita og þróunarverkefna á þessu sviði.
  5. Að leggja til umbætur í verklagi og stjórnsýslu fjárfestingarverkefna hjá hinu opinbera.
  6. Að meta möguleika og gagnsemi stofnunar samstarfsvettvangs með fleiri lykilhagsmunaaðilum á sviði verkefnastjórnsýslu og opinberra fjárfestinga

Eftirtalin eiga sæti í samráðsvettvanginum:

Hermann Sæmundsson, ráðuneytisstjóri fjármála- og efnahagsráðuneytisins
Gunnar Sigurðsson, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu
Katrín Oddsdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagráðuneytinu
Helgi Þór Ingason prófessor við verkfræðideild HR, fulltrúi Háskólans í Reykjavík
Svana Helen Björnsdóttir verkfræðingur, fulltrúi Verkfræðingafélags Íslands

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun um eldgos á Tenerife

    Óttast eldgos á Tenerife

    137 deilingar
    Share 55 Tweet 34
  • Sturluð staðreynd

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Slökkviliðið berst við elda í Kópavogi

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Meint kynferðisbrot: ,,Sýknaður af ákæru og tilhæfulausum ásökunum“

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?