• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fá­rán­legar hug­myndir

Haraldur F. Gíslason skrifar

Alvotech og Arion banki stofna leikskóla

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. desember 2024
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Borist hafa af því fréttir að fyrirtæki eins og Alvotech og Arion banki hafi hug á því að stofna leikskóla eða einhvers konar dagvistunarúrræði fyrir börn starfsmanna sinna. Fyrir þessum hugmyndum hefur Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur, meðal annars talað.

Haraldur F. Gíslason skrifar

Margar áleitnar spurningar vakna þegar svona umræða fer af stað. Gallarnir eru margir og nægir að nefna forgang fyrir börn starfsfólks fyrirtækjanna sem sveitarfélög, sem gera samning við slík einkafyrirtæki, setja sem kröfu. Við það skapast ójafnræði sem erfitt er fyrir sveitarfélög að rökstyðja.

Hingað til hefur verið sátt innan samfélagsins um að leikskólarnir séu byggðir upp á samfélagslegum grunni, líkt og grunnskólarnir. Hvernig væri umræðan ef Alvotech og Arion banki hygðust stofna grunnskóla? „Talsmenn fyrirtækjanna segja að lakur árangur íslenskra nemenda á Pisa prófinu muni til lengri tíma skekkja samkeppnisstöðu þeirra. Við þurfum betur menntað starfsfólk og þar skiptir miklu máli að grunnurinn sé góður.“

Erum við að sjá hér raungerast einhverja allsherjar stefnubreytingu á þeim samfélagssáttmála sem ríkt hefur um skólakerfið?

Þessi hugmynd fyrirtækja að setja á laggir leikskóla sprettur upp úr þeim vanda sem ofvöxtur leikskólakerfisins hefur skapað. Leikskólastigið hefur þróast hratt sem skólastig og í raun allt of hratt til þess að geta staðið almennilega undir sér. Ákvarðanir samfélagsins um að taka sífellt inn yngri og yngri börn án þess að hugsa málið fyllilega til enda hefur aukið á vandann og komið okkur öllum í erfiða stöðu. Að ætla á ofurhraða að brúa bilið milli leikskóla og fæðingarorlofs með leikskólum myndi setja aukinn þrýsting á kerfi sem þolir ekki meiri þrýsting.

Almennt hefur umræðan um brúun bilsins að litlu leyti verið út frá forsendum og þörfum barna. Fáir leita svara við spurningunni: „Hvað er best fyrir 1-2 ára börn?“

Vandi leikskólakerfisins er skortur á fagmenntuðu starfsfólki. Hvorki Alovotech né Arion banki munu framleiða kennara á örskotsstundu. Staðan er einfaldlega þannig að á meðan verið er að ná nýliðun á flug er eina raunhæfa lausnin að brúa bilið með lengra fæðingarorlofi, skilyrtu milli kynja. Það mætti til dæmis skoða að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla með þrepaskiptu kerfi sem talar saman við fæðingarorlofskerfið þar sem dvalartími barna lengist í áföngum eftir því sem þau eldast. Það hefur verið slegið met í innritun í leikskólakennaranám mörg ár aftur í tímann. Nýliðunin mun hins vegar taka tíma þar sem kerfið hefur stækkað hraðar en við ráðum við.

Það virðist vera einhver hugsanavilla í gangi um að einkafyrirtækjum muni ganga betur en opinberum aðilum að laða til sín kennara. Staðreyndin er þessi. Hlutfall kennara með leyfisbréf í leikskólum, reknum af sveitarfélögunum, er 26%. Hlutfall kennara með leyfisbréf í sjálfstætt starfandi leikskólum er 18%. Að meðaltali gengur sjálfstætt starfandi skólum ekki betur að laða til sín kennara en skólum sem sveitarfélögin reka.

Stærsta verkefni sveitarfélaga er að fjölga leikskólakennurum. Við erum ekki að ná að viðhalda nægilega háum gæðum í námi á leikskólastigi vegna mikils skorts á kennurum. Í dag vantar 2.469 kennara til að uppfylla lagalegar skyldur sem kveða á um að 67% þeirra sem sinna uppeldi og menntun í leikskólum eigi að hafa leyfisbréf kennara.

Til að fjölga kennurum enn frekar þarf að gera störf í leikskólum eftirsóttari, draga úr starfsmannaveltu og styðja við starfsfólk og stjórnendur leikskóla.

Það er aðallega tvennt sem mun stuðla að fjölgun kennara:

  • Laun þurfa að vera samkeppnishæf við aðra sérfræðinga á markaði.
  • Það þarf að skapa kennurum á leikskólastiginu starfsaðstæður sem þeir vilja starfa í.

Eini raunverulegi staðurinn þar sem hægt er að vinna markvisst að þessum tveimur punktum er við kjarasamningsborðið. Þar sitjum við núna. Við það borð veita einstaklingar eins og Einar Þorsteinsson borgarstjóri umboð til þess að gera kjarasamninga sem raunverulega geta fjölgað kennurum á leikskólastiginu. Það er sami Einar Þorsteinsson og kvartar yfir því að ekki fáist nægilega margir kennarar til starfa í leikskólum landsins. Eins og staðan er í dag virðist vera mjög djúpt á umboði frá honum til að gera það sem þarf. Hér fer ekki saman hljóð og mynd.

Höfundur er formaður Félags leikskólakennara

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sigurður ákærður fyrir morð á dóttur sinni

    Sigurður Fannar Þórsson dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp á 10. ára dóttur sinni.

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Vélhjólaslys

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Auglýsingaherferð SFS (LÍÚ) hefur engu skilað – Hundruðir milljóna í vaskinn

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Lýst var eftir Hlyni Gíslasyni

    67 deilingar
    Share 27 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?