Einn var fluttur á slysadeild um klukkan 16 í gær eftir að hafa skaðað sjálfan sig í verslun í Smáralind. Að sögn lögreglu er einstaklingurinn ekki grunaður um nokkuð saknæmt en hann hafði hníf meðferðis að sögn Fréttablaðsins í dag.
Gunnar Hilmarsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir í viðtali við blaðið að atvikið hafa átt sér stað á tíma þar sem töluverður fjöldi er í verslunarmiðstöðinni. Hann segir starfsfólki verslunarinna og Smáralindar hafa verið leiðbeint um það hvernig þau geti sótt sér áfallahjálp hjá Rauða krossinum.
Sveinn Stefánsson þjónustustjóri hjá Smáralind segir ákveðna ferla fara í gang þegar slíkt gerist í verslunarmiðstöðinni en vildi ekki frekar tjá sig um málið við blaðið. „Aðilinn fékk aðhlynningu og var fluttur á slysadeild. Það eru ferlar innanhúss ef til kemur,“ segir hann.