Veðurhorfur á landinu
Norðan- og norðaustan 13-20 m/s, en 15-23 undir Vatnajökli. Snjókoma eða él á N-verðu landinu, en hægari og bjartviðri syðra. Frost víða 0 til 5 stig, en frostlaust syðst.
Norðan 10-18 m/s með morgninum, hvassast SA-til og éljagangur, en léttskýjað sunnan heiða. Hægari og úrkomuminna seinni partinn og kólnar heldur.
Spá gerð: 18.02.2019 00:23. Gildir til: 19.02.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Austlæg átt, 8-15 m/s og skýjað með köflum, en 15-23 með S-ströndinni þegar líður á daginn og stöku él syðst. Hiti 0 til 5 stig syðra, en frost annars 1 til 6 stig.
Á miðvikudag:
Gengur í austanstorm með talsverðri rigningu eða slyddu, en snjókomu til fjalla. Lengst af úrkomulítið fyrir norðan. Dregur talsvert úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Heldur hlýnandi veður.
Á fimmtudag og föstudag:
Allhvöss eða hvöss sunnanátt með rigningu, en þurrt að kalla fyrir norðan. Fremur hlýtt í veðri.
Á laugardag:
Útlit fyrir að lægi og kólni með slyddu eða snjókomu A-lands, en annars þurrt að kalla.
Á sunnudag:
Útlit fyrir hæga vinda og bjartviðri, en vaxandi suðaustanátt með rigningu eða slyddu SV-til um kvöldið.
Spá gerð: 17.02.2019 20:22. Gildir til: 24.02.2019 12:00.