Norðankaldi og dálítil él norðan til framan af degi, en snýst síðan í sunnanátt með lítilsháttar slyddu eða snjókomu sunnan- og vestanlands, en léttir jafn framt til fyrir norðan og austan. Á morgun nálgast kröpp og dýpkandi lægð sunnan úr hafi og hvessir þá hressilega að austan og síðar norðaustan og fer að snjóa sunnan og austanlands. Skyggni og færð spillist ört í hríðarbyl á þeim slóðum og eru því gular viðvaranir í gildi. Fer þó smám saman hlýnandi og rignir við ströndina um kvöldið. Heldur hægari vindur úrkomuminna á vesturhelmingi landsins, en bætir vel í um kvöldið. Áfram stíf norðan- og norðaustanátt á fimmtudag með éljum víða á landinu, en bjartviðri syðra og kólnar heldur.
Gul viðvörun: Suðurland, Austfirðir og Suðausturland
Veðurhorfur á landinu
Norðaustan 8-15 m/s, hvassast NV til. Dálítil snjókoma eða slydda með köflum NA til, él NV-lands, en bjartviðri syðra. Snýst í suðlæga átt, 5-13 seinni partinn, með snjókomu eða slyddu um landið sunnan- og vestanvert, en léttir til fyrir norðan og austan. Frostlaust við S- og V-ströndina, en frost annars 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.
Vaxandi austan- og síðar norðaustanátt á morgun, 18-25 m/s með snjókomu S- og A-lands síðdegis, hvassast við fjöll, en él á NV-verðu landinu. Heldur hlýnandi veður og fer að rigna við S- og A-ströndina um kvöldið.
Spá gerð: 18.02.2020 06:17. Gildir til: 19.02.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Vaxandi austan- og síðar norðaustanátt, 15-25 m/s eftir hádegi, hvassast við fjöll SA til. Víða snjókoma eða slydda, einkum á A-verðu landinu, en rigning við ströndina um kvöldið. Hlýnar í veðri og hiti 0 til 5 stig með kvöldinu.
Á fimmtudag:
Norðaustan 15-23 m/s norðvestanlands, en annars hægari. Snjókoma á norðanverðu landinu, en él syðra. Hiti kringum frostmark.
Á föstudag:
Stíf austlæg átt með snjókomu eða éljagangi. Vægt frost víða hvar.
Á laugardag:
Snýst í norðaustanátt með snjókomu víða um land, en léttir til SV-lands og kólnar í veðri.
Á sunnudag:
Líklega hæg vestlæg átt með éljum, einkum V-lands og frosti 1 til 6 stig.
Á mánudag:
Útlit fyrir stífa suðvestanátt með éljum, en bjartviðri N- og A-lands og köldu veðri.
Spá gerð: 17.02.2020 20:13. Gildir til: 24.02.2020 12:00.