Sami árásaraðili ógnað tveimur aðilum með hnífi skv. tilkynningu
Að kveldi sunnudagsins 14. febrúar var lögregla kölluð að íbúðarhúsi á Bíldudal þar sem átök höfðu átt sér stað. Þegar lögreglu bar að var þar maður með áverka og skerta meðvitund. Annar karlmaður var á staðnum og var hann handtekinn og færður í fangageymslu á Patreksfirði, grunaður um að hafa verið valdur að árásinni.
Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur með þyrlu LHG á sjúkrahús í Reykjavík. Hann reyndist síðar ekki með alvarlega áverka. Árásaraðilanum var sleppt lausum daginn eftir, mánudaginn 15. febrúar, eftir yfirheyrslu.
Síðar sama dag var lögreglan aftur kölluð að sama húsi á Bíldudal vegna tilkynningar um að sami árásaraðili hafi ógnað tveimur aðilum með hnífi. Lögreglan fór á vettvang og yfirbugaði manninn og færði aftur í fangaklefa á Patreksfirði. Einnig var kona handtekin á staðnum, en hún hafði veist að lögreglunni og reynt að hindra handtöku árásaraðilans. Bæði sátu þau í fangageymslu lögreglunnar þar til daginn eftir. Þeim var sleppt lausum að yfirheyrslu lokinni. Þau munu hafa bæði hafa verið við vinnu á Bíldudal. Mál fólksins er enn til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörðum.
Umræða