Hugleiðingar veðurfræðings
Lægðasvæði langt suður í hafi nálgast landið í dag. Áttin verður austlæg eða suðaustlæg, víða kaldi en hvassara syðst á landinu. Dálítil rigning eða slydda með köflum, en yfirleitt hægari vindur og þurrt að kalla fyrir norðan. Hlýnar í veðri, hiti að 10 stigum syðst.
Seint í kvöld bætir í rigningu sunnantil á landinu og útlit fyrir talsverða rigningu suðaustanlands. Styttir upp vestanlands í fyrramálið, en áfram dálitlar skúrir á víð og dreif. Dregur víða úr vindi seinnnipartinn á morgun. Hiti 5 til 10 stig.
Spá gerð: 18.02.2025 06:12. Gildir til: 19.02.2025 00:00.

Veðurhorfur á landinu
Austan og suðaustan 8-15 m/s, en 15-20 syðst. Rigning eða slydda með köflum, en hægari og að mestu þurrt fyrir norðan. Hiti 2 til 10 stig, mildast syðst.
Suðaustan 5-13 á morgun og styttir upp vestanlands, en dálitlar skúrir á víð og dreif og talsverð rigning suðaustantil framan af degi. Hiti 5 til 10 stig.
Spá gerð: 18.02.2025 09:48. Gildir til: 20.02.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Austlæg átt 5-13 m/s og rigning með köflum, en dálítil slydda norðanlands undir kvöld. Hiti víða 2 til 6 stig, en rétt yfir frostmarki norðvestantil.
Á föstudag:
Austlæg eða breytileg átt 5-13. Væta með köflum og hiti 1 til 6 stig, en þurrt að kalla og hiti í kringum frostmark norðantil.
Á laugardag:
Breytileg átt 3-10 og víða dálitlar skúrir eða él, einkum sunnanlands. Kólnar í veðri.
Á sunnudag:
Norðanátt og stöku él á víð og dreif, en yfirleitt bjart sunnan heiða. Frost 0 til 4 stig, en frostlaust við suðurströndina.
Á mánudag:
Útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt og dálítil él, einkum norðanlands. Herðir á frosti.
Spá gerð: 18.02.2025 09:10. Gildir til: 25.02.2025 12:00.

