• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 18. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

Snjóflóðahætta - Útlit fyrir öflugan útsynning, þ.e. suðvestan hvassviðri eða storm með dimmum éljum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Það hefur verið rólegt veður á landinu í dag en nú síðdegis nálgast öflug skil úr vestri og þau ganga inn yfir vesturhluta landsins seint í kvöld.
Það snýst því í vaxandi sunnanátt, víða 15-25 m/s í fyrramálið, hvassast í vindstrengjum á Norðurlandi. Þá er útlit fyrir talsverða rigningu sunnan- og vestanlands, og mikið úrhelli á norðanverðu Snæfellsnesi, en úrkomuminna um landið norðaustanvert. Hlýtt í veðri og búast má við talsverðri hláku um tíma, einkum um landið norðan- og norðvestanvert þar sem fólk er hvatt til að hreinsa frá niðurföllum.

Hlýja loftið fer þó hratt hjá og seinnipartinn sækir kaldara loft að úr vestri, vindur verður suðvestlægari og það kólnar með skúrum og síðar éljum sunnan- og vestanlands. Á föstudag er svo útlit fyrir öflugan útsynning, þ.e. suðvestan hvassviðri eða storm með dimmum éljum um landið sunnan- og vestanvert. Spá gerð: 18.03.2026 15:10. Gildir til: 20.03.2026 00:00.

  • Viðvörun Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi Meira

  • Viðvörun Óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum Meira

  • Gul viðvörun vegna veðurs: Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirðir, Miðhálendi og Strandir og norðurland vestra   Meira

Veðurhorfur á landinu

Vaxandi sunnanátt í kvöld og hlýnar vestanlands með slyddu eða rigningu.

Sunnan 15-25 m/s í fyrramálið, hvassast á Norðurlandi. Talsverð rigning sunnan- og vestanlands, en úrkomuminna um landið norðaustanvert. Hlýnandi, hiti 5 til 13 stig um hádegi á morgun, hlýjast norðaustantil.
Suðvestan 15-23 seinnipartinn og kólnar sunnan- og vestantil með skúrum og síðar éljum.
Spá gerð: 18.03.2026 18:32. Gildir til: 20.03.2026 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Suðvestan 15-23 m/s með dimmum éljum, en þurrt að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Frost víða 0 til 6 stig.

Á laugardag:
Suðvestan 13-20 um morguninn og éljagangur, en lægir smám saman þegar líður á daginn. Áfram þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti breytist lítið. Hvessir suðaustanlands um kvöldið með snjókomu.

Á sunnudag:
Norðvestan hvassviðri eða stormur, en hægari um landið vestanvert. Víða él, en talsverð snjókoma norðan- og austanlands fram eftir degi. Dregur úr vindi seinnipartinn. Áfram svalt.

Á mánudag:
Norðlæg eða breytileg átt og él, en styttir upp um landið sunnanvert. Frost 1 til 10 stig.

Á þriðjudag:
Vaxandi suðaustanátt og hlýnar sunnan- og vestanlands með snjókomu og síðar slyddu eða rigningu.
Spá gerð: 18.03.2026 08:05. Gildir til: 25.03.2026 12:00.

 

Umræða
Share9Tweet6
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kortisólskortur drepur – sterar bæla kortisól, segir Helga Ágústa innkirtlalæknir

    Líshættuleg líkamsárás er Palestínumenn og Íslendingar hittust

    52 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    100 deilingar
    Share 40 Tweet 25
  • Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • ,,Hræðsluáróðri hefur verið beitt eins og svipu“

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Neituðu að taka niður upplogna níðgrein um meint barnaníð

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?