Í dýravelferðarlögum kemur fram að Matvælastofnun sé heimilt að fara í eftirlitsheimsóknir á hvern þann stað þar sem dýr eru haldin til að kanna aðstæður og aðbúnað þeirra og við beitingu þvingunaraðgerða. Í því felst m.a. heimild til sýna- og myndatöku. Ekki er þó heimilt að fara í þessum tilgangi í íbúðarhús, útihús eða aðra þvílíka staði án samþykkis eiganda eða umráðamanns húsnæðisins nema að fengnum dómsúrskurði.
Nýlega fóru starfsmenn stofnunarinnar (eftirlitsdýralæknir og dýraeftirlitsmaður) í eftirlit á sauðfjárbú í suðausturumdæmi. Bóndinn hleypti eftirlitsfólkinu inn í fjárhúsið en þegar dýraeftirlitsmaðurinn fór að setja út á velferð fjárins lagði hann hendur á viðkomandi starfsmann og lét ekki af því fyrr en eftirlitsdýralæknirinn hrópaði á hann að hætta. Ekki tókst því að ljúka eftirlitinu í það skiptið.
Tveimur vikum síðar var farið aftur í eftirlit á sama bæ og nú í lögreglufylgd og tókst þá að ljúka eftirlitinu. Að loknu eftirliti var bóndanum skýrt frá þeim frávikum sem eftirlitið hafði leitt í ljós. Bóndinn spurði þá eftirlitsmanninn í tvígang og í viðurvist lögreglu hvort hann ætti að skjóta hann.
Matvælastofnun lítur þessa hegðun mjög alvarlegum augum en hún er því miður ekki einsdæmi. Yfirleitt gengur þó eftirlitið mjög vel.
Í almennum hegningarlögum er að finna ákvæði sem segir að hver sá sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu skuli sæta fangelsi allt að 6 árum. Beita megi sektum ef brot sé smáfellt.
Matvælastofnun hefur kært bæði brotin til lögreglu.