Brot Landsvirkjunar
Samkeppniseftirlitið hefur í dag birt ákvörðun um að leggja 1,4 milljarð króna sekt á Landsvirkjun. Eftir ítarlega rannsókn hefur Samkeppniseftirlitið komist að þeirri niðurstöðu að Landsvirkjun hafi með alvarlegum hætti misnotað markaðsráðandi stöðu sína með verðlagningu á raforku í útboðum Landsnets á árunum 2017 til 2021.
Verðlagning Landsvirkjunar í umræddum útboðum gerði það að verkum að viðskiptavinir Landsvirkjunar, sem versluðu raforku af Landsvirkjun og tóku þátt í útboðum Landsnets í samkeppni við Landsvirkjun, gátu ekki selt raforkuna nema með tapi.
Háttsemi Landsvirkjunar vann gegn því að nýir og minni keppinautar á raforkumarkaði næðu fótfestu og gætu þannig aukið samkeppni fyrirtækjum og einstaklingum til hagsbóta.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins:
„Virk samkeppni á raforkumarkaði hefur úrslitaþýðingu fyrir samkeppnishæfni Íslands og hagsmuni þeirra sem hér búa. Ef rétt er á málum haldið getur virk samkeppni stuðlað að raforkuöryggi, flýtt fyrir orkuskiptum, hraðað öðrum nýjungum og tryggt okkur hagstætt raforkuverð til framtíðar litið.
Í þessu ljósi skiptir miklu máli hvernig stór og rótgróin raforkufyrirtæki, oftast í opinberri eigu, haga sinni starfsemi. Þessi ákvörðun fjallar um það.“
Ákvörðunin er aðgengileg hér .
- Viðskiptin sem rannsóknin beindist að
- Brot Landsvirkjunar
- Sektirnar
- Rannsóknin – kvartanir minni keppinauta og sáttarviðræður
- Samkeppni á raforkumörkuðum – þýðing Landsvirkjunar og annarra keppinauta

