• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 9. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

Vörugjald af nýjum rafmagnsbílum fellt niður

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. október 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Vörugjald á nýja rafmagnsbíla verður fellt niður samkvæmt tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Það sama á við um aðra bíla sem ganga fyrir hreinni íslenskri orku, eins og metani eða vetni.

Tillagan lýtur að breytingum á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026. Samhliða er gert ráð fyrir að vörugjald hækki á nýja bíla sem ganga að hluta eða öllu leyti fyrir jarðefnaeldsneyti. Einnig er lagt til að regluverk verði einfaldað og undanþágum fækkað. Markmið breytinganna er að skapa varanlegan hvata til að velja ökutæki sem nota hreina innlenda orkugjafa í stað ökutækja sem ganga fyrir innfluttri orku.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra

„Við erum að stuðla að því að það verði hagkvæmara að kaupa bíla sem ganga fyrir hreinni íslenskri orku í stað innfluttar orku. Ávinningurinn af því er ótvíræður fyrir efnahag landsins og það hjálpar okkur líka að ná markmiðum okkar í loftslagsmálum.“

„Almenningur hefur sett bíla sem ganga fyrir innlendri orku í forgang. Það sést á því að meira en helmingur allra nýskráðra bíla á heimilum landsmanna á undanförnum árum hafa verið rafmagnsbílar. Með þessari breytingu sköpum við enn skýrari hvata fyrir heimili og fyrirtæki til að velja bíla sem ganga fyrir íslenskri orku.“

Breytingar á vörugjaldi

Tillagan gerir ráð fyrir að hlutfall vörugjalds breytist með eftirfarandi hætti:

  • Vörugjald á ökutæki sem ganga fyrir rafmagni, metani og vetni verður fellt niður.
  • Losunarviðmið útblásturs á ökutækjum sem losa koltvísýring, CO2, verður hert.
  • Vörugjald af ökutækjum sem áður báru 13% vörugjald hækkar í 20%. Hér undir falla einkum ýmiskonar vinnuvélar og ökutæki til sérhæfðra nota sem eru 5 tonn eða minna að leyfðri heildarþyngd, t.a.m. kranabifreiðar, dráttarbifreiðar og tengivagnar.
  • Vörugjald af ökutækjum sem áður báru 30% vörugjald hækkar í 40%. Hér er einkum um að ræða minni hópferðabifreiðar, bifhjól og fjórhjól.
  • Einföldun á regluverki með fækkun undanþága.

Tillagan gerir ráð fyrir að tekjur af vörugjaldi á ökutæki aukist um 7,5 milljarða króna árið 2026. Ef markmið breytinganna nást og hlutfall nýskráðra umhverfisvænna ökutækja eykst á kostnað ökutækja sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti má gera ráð fyrir lækkandi tekjum á næstu árum samhliða orkuskiptum.

Einfaldara og skilvirkara kerfi

Eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar er að einfalda stjórnsýslu og auka skilvirkni. Tillögurnar miða að færri sértækum ívilnunum, auknu samræmi og jafnræði í álagningu, sem og fækkun undanþága. Hvatar fyrir orkuskipti verða jafnframt einfaldari með niðurfellingu vörugjalds á rafmagnsbíla.

Almenningur forgangsraðar hreinorkubílum

Breytingarnar hafa engin áhrif á þau ökutæki sem nú þegar eru í notkun þar sem vörugjald leggst aðeins á ökutæki við innflutning til landsins og framleiðslu innanlands. Á síðustu árum hefur um helmingur nýskráðra bíla almennings verið rafmagnsbílar en einungis um fimmtungur verið dísil- eða bensínbílar, og á þessu ári er hlutdeild rafmagnsbíla hjá almenningi komin yfir 60%. Af þessum ástæðum er gert ráð fyrir að áhrif á almenning og vísitölu neysluverðs verði takmörkuð.

Með því að fella niður vörugjald á umhverfisvæna bíla líkt og rafmagnsbíla er stuðlað að því að þessi jákvæða þróun haldi áfram. Þannig mun sífellt stærri hluti bílaflotans ganga fyrir hreinni íslenskri orku sem er bæði hagkvæmara fyrir almenning, styrkir þjóðarbúið og styður við markmið Íslands í loftslagsmálum.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Grillmarkaðurinn er fyrsta flokks veitingastaður – Frábærar veitinga og þjónusta

    Stóra vandamálið á húsnæðismarkaði er skipulagt ofbeldi

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Fjármálaráðherra vill að HS Orka, Bláa Lónið ofl. greiði varnargarða

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Þrír látnir vegna mikils öldugangs á Tenerife

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Íslendingur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Saksóknari handtekinn og færður í fangageymslu

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?