• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Breyting á aðgangsskilyrðum háskóla – aukið jafnræði milli lokaprófa bók- og starfsnáms

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. nóvember 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Mennta- og menningarmálaráðuneyti birtir til umsagnar frumvarp um breytingu á lögum sem varða aðgangsskilyrði í íslenska háskóla. Markmið frumvarpsins er að jafna möguleika framhaldsskólanema sem ljúka prófi af þriðja hæfniþrepi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla til háskólanáms. Frumvarpið felur þar með í sér aukið jafnræði til náms óháð mismunandi námsleiðum nemenda og lokaprófum þeirra.

Í ljósi breytinga á tilhögun og skipulagi náms í framhaldsskólum á liðnum árum og áratugum er nauðsynlegt að jafna stöðu nemenda sem náð hafa tiltekinni hæfni og lokið námi með öðru lokaprófi en stúdentsprófi. Lagt er til í ljósi breytinga á inntaki náms á ólíkum viðurkenndum námsbrautum í framhaldsskóla, og samhliða þróun og umræðu um jafna stöðu starfsnámsnema, að horft verði til ólíkra lokaprófa og þau metin í samræmi við þá hæfni og þekkingu sem þau veita nemendum.

„Með þessari breytingu skapast einnig hvati fyrir háskóla til að skilgreina aðgangsviðmið í samræmi við kröfur til mismunandi náms, en með því fæst aukið gagnsæi sem nýtist nemendum, skólum og atvinnulífinu. Ekki er með neinu móti verið að draga úr sjálfstæði háskóla og ábyrgð háskóla á starfsemi sinni heldur ryðja úr vegi hindrunum sem verið hafa milli skólastiga og auka jafnræði milli bók- og starfsnáms,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Lagabreytingunum er þannig ætlað að ýta undir að nemendur fái notið hæfni, þekkingar og færni sem þeir hafa öðlast með ólíkum lokaprófum frá mismunandi framhaldsskólum, þegar þeir sækjast eftir frekara námi á háskólastigi.

Um námslok á þriðja hæfniþrepi:

„Námslok á þriðja hæfniþrepi einkennast af enn meiri kröfum um þekkingu, leikni og hæfni tengdar sérhæfingu og fagmennsku. Þar fer fram sérhæfður undirbúningur undir háskólanám, lögvarin störf, sérhæft starfsnám og listnám. Eftir námslok á þriðja þrepi eiga nemandur að geta unnið sjálfstætt, borið ábyrgð á skipulagi og úrlausn verkefna og metið eigin störf.“

Opið er fyrir umsagnir um frumvarpsdrögin til 27. nóvember nk. Smelltu hér til að kynna þér málið í samráðsgátt.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?