• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Síldarvinnslan og Samherji hætta við viðskipti vegna skoðunar Samkeppniseftirlitsins

Verðhækkanir – opinber umfjöllun keppinauta og hagsmunasamtaka þeirra getur farið gegn samkeppnislögum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. desember 2024
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Í fjölmiðlum hefur undanfarið verið fjallað talsvert um verðhækkanir sem framundan kunni að vera og neytendur muni finna fyrir. Til umfjöllunar hafa verið ýmsar mikilvægar neytendavörur eins og matvæli og raforka.

Keppinautar og hagsmunasamtök fyrirtækja hafa tekið þátt í þessari opinberu umræðu. Nefna má sem dæmi að starfsmenn tveggja fyrirtækja sem eru keppinautar í framleiðslu tiltekins vöruflokks mættu saman í umræðuþátt og ræddu verðhækkanir. Í samtali þeirra voru færð fyrir því rök að hækkandi hráefnisverð hefði leitt til hækkunar á umræddum vörum til neytenda og boðuðu þeir jafnframt að frekari verðhækkanir væru í farvatninu. Í öðru tilviki voru tekin viðtöl við stjórnendur dagvörukeðja og haft eftir þeim að verulegar hækkanir væru framundan.

Þá eru nýleg dæmi um að forsvarsmenn hagsmunasamtaka fyrirtækja hafi tjáð sig opinberlega um að framundan séu hækkanir á ýmsum nauðsynjavörum og eftir atvikum fært rök fyrir nauðsyn slíkra hækkana.

Samkeppnislögin setja keppinautum og samtökum þeirra skorður

Af þessu tilefni er rétt að minna á að samkeppnislög banna hvers konar samráð milli fyrirtækja sem hefur það að markmiði eða af því leiðir að komið sé í veg fyrir samkeppni eða hún takmörkuð. Það getur til dæmis talist til ólögmæts samráðs ef keppinautar ræða saman um væntanlegar verðhækkanir eða miðla upplýsingum um það hver til annars, þ.á m. í opinberri umræðu, t.d. fjölmiðlum.

Til þess að samkeppni þrífist þurfa fyrirtæki að búa við ákveðna óvissu um það hvernig keppinautarnir hyggist bregðast við utanaðkomandi aðstæðum hverju sinni, s.s. verðhækkunum frá birgjum. Í samkeppnisumhverfi leita fyrirtæki mismunandi leiða til að bjóða vörur eða þjónustu á sem hagstæðustu verði, s.s. að hagræða í rekstri, leita betri kjara hjá öðrum birgjum eða draga úr arðgreiðslum. Búi fyrirtæki hins vegar yfir vitneskju um viðbrögð keppinautanna dregur úr hvötum þeirra til að keppa og halda verði niðri.

Meðal annars af þessum ástæðum banna samkeppnislög einnig hvers konar samkeppnishindranir af hálfu hagsmunasamtaka fyrirtækja. Undir það bann fellur til dæmis upplýsingamiðlun samtaka um væntanlegar hækkanir eða sameiginlegur rökstuðningur þeirra fyrir hækkunum.

Viðurkennt er að háttsemi af þessu tagi sé sérstaklega skaðleg á fákeppnismörkuðum.

Fyrirtæki og hagsmunasamtök þeirra mega vænta þess að Samkeppniseftirlitið taki vísbendingar um samkeppnishamlandi háttsemi sem hér er lýst til alvarlegrar athugunar. Brot á samkeppnislögum geta varðað ströngum viðurlögum.

Árétting til fyrirtækja og samtaka þeirra

Með framangreint í huga telur Samkeppniseftirlitið mikilvægt að brýna eftirfarandi fyrir fyrirtækjum og samtökum þeirra:

  • Fyrirtæki ættu undir engum kringumstæðum að miðla upplýsingum til keppinauta um fyrirhugaðar eða líklegar breytingar á verði, hvorki opinberlega, á vettvangi hagsmunasamtaka, milliliðalaust, né með öðrum hætti.
  • Hagsmunasamtökum fyrirtækja ber að fara gætilega þegar kemur að umræðu og fræðslu sem getur haft áhrif á markaðshegðun félagsmanna. Öll þátttaka þeirra í umræðu um verð og verðlagningu er sérstaklega varhugaverð og ætti ekki að eiga sér stað nema tryggt sé að hún sé innan þeirra marka sem lög leyfa.
  • Á samkeppnismarkaði á hækkun á aðfangaverði ekki að leiða sjálfkrafa til hækkunar á verði til neytenda. Samkeppnislög gera ráð fyrir því að hvert og eitt fyrirtæki geri eigin ráðstafanir og taki sjálfstæðar ákvarðanir til að bregðast við slíkum áskorunum, á sínum eigin rekstrarlegu forsendum og án alls samráðs við keppinauta eða hvatningar frá hagsmunasamtökum.
  • Framangreint á við óháð því hvort í hlut eiga framleiðslufyrirtæki, innflutningsfyrirtæki, aðrir birgar eða smásalar.

Nánari leiðbeiningar til hagmunasamtaka fyrirtækja og upplýsingar um fyrri mál af þessum toga má finna á þessari leiðbeiningarsíðu.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Næsta lægð er væntanleg

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Fjöldi umsækjenda um tvö embætti skrifstofustjóra

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?