BL ehf. hlaut í desember jafnlaunavottun Jafnréttisstofu og er BL jafnframt fyrsta bifreiðaumboð landsins til að hljóta vottunina. Um er að ræða stjórnunarstaðalinn IST 85:2012 fyrir jafnlaunakerfi, sem BL hefur m.a. samþætt eigin jafnlauna- og jafnréttisstefnu sem fyrirtækið hefur starfað eftir um árabil.
Gegn kynbundnum launamun
„Vinna starfsfólks BL við innleiðinguna hófst í byrjun árs 2018 og við lukum henni ári fyrr en frestur fyrirtækja með 250 starfsmenn eða fleiri hafa til að ljúka innleiðingunni,“ segir Anna Lára Guðfinnsdóttir mannauðsstjóri BL. Hún segir meginmarkmið jafnlaunavottunarinnar, sem var lögfest í júní 2017, þá að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði í samræmi við gildandi lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla á vinnumarkaði.
Allir metnir að verðleikum
„Jafnlaunastefna BL miðar að því að hver og einn starfsmaður sé metinn að verðleikum óháð kynferði, kynþætti, aldri, þjóðerni eða trú. Stefna okkar kveður á um það að báðum kynjum skuli greidd jöfn laun og njóti sömu kjara fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf,“ segir Anna Lára. Hún segir jafnréttisstefnu BL gera kröfu um að nýta hæfni, krafta og þekkingu starfsmanna af báðum kynjum til fulls og að koma í veg fyrir að kynbundin mismunun geti átt sér stað. „Þess vegna leggjum við t.d. áherslu á að auglýst störf laus til umsóknar hjá BL henti ávallt báðum kynjum. Hvort tveggja; jafnréttis- og jafnlaunastefna BL, miða að því að viðhalda stöðu BL sem góðum og eftirsóknarverðum vinnustað,“ segir Anna.
BSI á Íslandi
Faggiltur vottunaraðili metur hvort öll skilyrði staðalsins hafi verið uppfyllt og séu þau uppfyllt veitir hann viðkomandi fyrirtæki eða stofnun jafnlaunavottun. BSI á Íslandi annaðist úttektir á innleiðingarferlinu og vottun jafnlaunakerfisins hjá BL.