Mynd; Dr. Skúli Skúlason formaður stjórnar Lyfjaeftirlits Íslands og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Lyfjaeftirlit Íslands er sjálfstæð stofnun sem komið var á laggirnar sl. vor og tók hún þá við eftirlitshlutverki Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Stjórnvöldum ber samkvæmt íþróttalögum að sinna lyfjaeftirliti og á dögunum var skrifað undir langtímasamning við Lyfjaeftirlit Íslands um starfsemi þess og fjármögnun. Samningurinn var undirritaður af Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og dr. Skúla Skúlasyni formanni stjórnar Lyfjaeftirlits Íslands.
„Sjálfstætt lyfjaeftirlit er mikilvægt fyrir íþróttalífið í landinu og ímynd íþróttafólksins okkar út á við. Hlutverk þess í forvarnar- og fræðslumálum er einnig brýnt, ekki síst á tímum þegar vísbendingar eru um að lyfjanotkun sé að færast í aukana. Ég fagna því til að mynda að Lyfjaeftirlit Íslands hafi kynnt líkamsræktarstöðvum aðgerðir gegn notkun ólöglegra árangursbætandi efna á þeim vettvangi,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Lyfjaeftirlit Íslands skipuleggur og framkvæmir lyfjaeftirlit á Íslandi, og birtir og kynnir bannlista um efni þau sem óheimilt er að nota í íþróttum. Lyfjaeftirlit Íslands sinnir einnig fræðslu og forvörnum gegn lyfjamisnotkun og stendur reglulega fyrir fræðslufyrirlestrum um lyfjamál í háskólum, framhaldsskólum og hjá íþróttasamböndum- og félögum. Þá tekur Lyfjaeftirlitið þátt í alþjóðlegu samstarfi í tengslum við baráttuna gegn lyfjamisnotkun í íþróttum og sinnir eftirliti í samræmi við þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands sem fram koma í alþjóðasamningum UNESCO um lyfjaeftirlit og lyfjaeftirlitssamningi Evrópuráðsins.