• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 25. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ólögleg lán með breytilegum vöxtum

Fjölmargir dómar og úrskurðir hafa fallið á sama veg: óskýrir skilmálar og einhliða vaxtabreytingar er fyrirkomulag sem stenst ekki lög

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. maí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Neytendasamtökin ætla að láta reyna á lögmæti lána sem bera breytilega vexti og munu fara með þrjú prófmál fyrir dóm. Samtökin telja lán með breytilegum vöxtum ólögleg þar sem ákvarðanir um vaxtabreytingar eru verulega matskenndar og ógegnsæjar. Fjölmargir dómar og úrskurðir hafa fallið á sama veg: óskýrir skilmálar og einhliða vaxtabreytingar er fyrirkomulag sem stenst ekki lög. Má í því sambandi benda á dóm Hæstaréttar frá árinu 2017 þar sem Íslandsbanka var gert að endurgreiða hundruðum lántakenda oftekna vexti en einnig dóma Evrópudómstólsins og úrskurð Neytendastofu.

Mannréttindadómstóll Evrópu

Samtökin kröfðust þess að bankarnir lagfærðu skilmála sína og leiðréttu hlut þeirra lántaka sem hallað hefur verið á með vaxtabreytingum sem standast ekki ákvæði laga. Bankarnir höfnuðu kröfum Neytendasamtakanna. Samtökin ætla því að stefna bönkunum og leita að lántökum sem vilja fara með mál sín fyrir dóm. Jafnframt eru lántakar hvattir til að bregðast fljótt við og verja rétt sinn og fjárkröfur.

Vaxtamálið varðar öll lán með breytilegum vöxtum til neytenda, bæði verðtryggð og óverðtryggð, hjá öllum lánastofnunum, bæði húsnæðislán sem og önnur lán, jafnvel þó að ekki hafi reynt á vaxtabreytingar. Lán sem bera „fasta vexti“ hluta lánstímans, til dæmis 3-5 ár en sem geta tekið breytingum, eru í raun lán með breytilegum vöxtum. Einnig er um að ræða lán sem hafa verið greidd upp á síðastliðnum fjórum árum. Lánin einskorðast ekki við bankana, heldur einnig aðrar lánastofnanir svo sem lífeyrissjóði og sparisjóði.

Til að gefa einhverja hugmynd um hvaða upphæðir er að ræða fyrir hvern og einn lántaka má miða við dæmigert 30 m.kr. húsnæðislán. Hvert oftekið prósentustig í vöxtum nemur 300.000 kr. á ári. Neytendasamtökunum reiknast til að oftakan sé allt að 2,25 prósentustig eða sem nemur 675.000 kr. á ári, miðað við gefnar forsendur.

Mikilvægast  er þó það að lántakar séu ekki útsettir fyrir einhliða ákvörðunum um vaxtabreytingar lána sinna í framtíðinni. Líklega munu vextir á Íslandi hækka aftur að loknu Covid samdráttarskeiðinu og þá þarf að vera alveg skýrt hvað ræður vöxtunum, enda um mikla hagsmuni að tefla fyrir lántaka.

Ekki liggja fyrir opinberar upplýsingar um fjölda lána með breytilega vexti eða upphæð þessara lána og því þarf að taka eftirfarandi tölum með fyrirvara en í lok mars 2021 námu útlán viðskiptabankanna til heimilanna tæpum 1.550 milljörðum króna. Neytendasamtökin telja að stærstur hluti þessara lána sé með ólöglegum skilmála um breytilega vexti. Þannig nemur hvert prósentustig til eða frá 15,5 milljörðum króna.

Allar nánari upplýsingar og skráning til þátttöku á vaxtamalid.is

Umræða
Share12Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sannkölluð stórhríð og appelsínugular viðvaranir

    Sannkölluð stórhríð og appelsínugular viðvaranir

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Kona sökuð um kynferðislega misnotkun, barsmíðar, svelti, heilaþvott og fleira

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Líkamsárás í Túnahverfi og Hamas-samtökin

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Viðvörun: Vindhviður 35 m/s og yfir 45 m/s

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Bankarnir vilja peningana þína

    95 deilingar
    Share 38 Tweet 24
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?