• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 7. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Breyting á húsaleigulögum til að bæta réttarstöðu leigjenda

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. maí 2022
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Mælt fyrir breytingum á húsaleigulögum til að bæta réttarstöðu leigjenda og brunavarnir í leiguhúsnæði

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi um breytingu á húsaleigulögum til að bæta réttarstöðu leigjenda og brunavarnir í leiguhúsnæði. 

Í frumvarpinu er lagt til að koma á skráningarskyldu leigusamninga í opinberan gagnagrunn. Leigusölum verður þannig skylt að skrá leigusamninga í húsnæðisgrunn á vegum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Með skráningu samninga fást betri upplýsingar um leigumarkaðinn hér á landi, m.a. um markaðsleigu og þróun leiguverðs, lengd leigusamninga og hvort þeir séu tímabundnir eða ótímabundnir. Þessar breytingar taka mið af tillögu 13 í skýrslu átakshóps stjórnvalda um húsnæðismál frá 2019.

„Skráningarskylda leigusamninga mun nýtast almenningi, gera leigumarkaðinn gagnsærri og upplýsingar um markaðsleigu húsnæðis eftir staðsetningu verða aðgengilegri. Slíkt gefur raunhæfari mynd af leigumarkaði og bætir réttarstöðu leigjenda,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra í framsöguræðu sinni á Alþingi um frumvarpið.

Betri upplýsingar um leiguverð munu nýtast við mat á því hvort leigufjárhæð eða síðari hækkun hennar sé sanngjörn og eðlileg í garð beggja samningsaðila. Samkvæmt gildandi rétti er markaðsleiga sambærilegs húsnæðis það meginviðmið sem líta ber til við mat á því hvort leigufjárhæð sé sanngjörn og eðlileg.

Jafnframt er lögð til sú breyting á húsaleigulögum að skráning á hækkun leigufjárhæðar í gagnagrunninn verði forsenda þess að hækkunin taki gildi gagnvart leigjanda.

Liður í að bæta brunavarnir

Frumvarpið er einnig liður í að bæta brunavarnir í leiguhúsnæði og draga lærdóm af skelfilegum eldsvoða sem varð við Bræðraborgarstíg 1 sumarið 2020 og kostaði þrjá einstaklinga lífið. Lagt er til í frumvarpinu að leigusali geri sérstaklega grein fyrir brunavörnum í leigusamningnum, við upphaf leigusambands, samkvæmt niðurstöðu ástandsskoðunar. Með þessu er tekið mið af tillögum 4 og 5 í skýrslu samráðsvettvangs um brunavarnir í íbúðarhúsnæði frá því í mars 2021.

Meðal þess sem gera þarf grein fyrir við úttekt húsnæðis og gerð leigusamnings er:

  • hvort slökkvitæki sé í íbúðinni;
  • hvort það hafi verið yfirfarið af þar til bærum aðila fyrir gerð leigusamningsins;
  • hvort reykskynjarar séu í öllum helstu rýmum, þar með töldum öllum svefnherbergjum, og þeir hafi verið prófaðir við úttektina;
  • hvort eldvarnarteppi sé fyrir hendi í eldhúsi;
  • hvort flóttaleiðir úr húsnæðinu séu fullnægjandi.

„Með þessum breytingum er stuðlað að bættri vitund bæði leigusala og leigjanda um ástand brunavarna og nauðsynlegt viðhald þeirra,“ sagði ráðherra á Alþingi í gær.

  • Skoða frumvarpið til breytinga á húsaleigulögum
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Traust til Seðlabankans er hrunið

    Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    123 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?