• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

105 ár síðan konur og eignalausir karlar fengu kosningarétt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. júní 2020
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Valdaleysi er hættulegt einstaklingum og samfélögum

Í dag eru 105 ár síðan konur og eignalausir karlar fengu kosningarétt. Það er varla hægt að tala um Ísland sem lýðræðisríki fyrir þann tíma enda holur hljómur í lýðræði þar sem stórum hluta þjóðarinnar var meinað um kosningarétt. Það er ótrúlegt að til að ná þessum áfanga árið 1915 hafi þurft harða baráttu og fólkið sem stóð í framlínunni var talið öfgafullt, sérstaklega konurnar.
Þó við reisum í dag minnisvarða um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur og nefnum götu eftir henni þá má sjá af gömlum skrifum að hún þótti óþolandi frek og uppivöðslusöm í ákveðnum hópum. Í dag væri hún talin fánaberi íhaldsamra og borgaralegra gilda. Þannig týnist tíminn og viðhorfin með.
Í dag er það talið róttækt að vilja jöfnuð og valdeflingu allra, innan sem utan vinnumarkaðar. Við höfum að einhverju leiti undirgengist þá hugmynd að fátækt ákveðinna hópa sé lögmál, að kynbundið misrétti sé of rótgróið til að uppræta og almennum lífsgæðum sé mjög misskipt. Fólk sem talar í aðrar áttir er talið róttækt. Að jaðarsetja ákveðna hópa er veruleikinn í dag en sá veruleiki er hættulegur.
Valdaleysi er hættulegt einstaklingum og samfélögum og er kveikjan að því að fólk telur eina raunhæfa kostinn til betra lífs að koma einum „sterkum leiðtoga“ til valda sem býður uppá heildarlausnir. Oft reynist þessi eini „sterki leiðtogi“ vera leiðin til glötunar. Traustið á lýðræðinu lætur undan hjá jaðarsettum hópum – þetta birtist okkur víða um heim um þessar mundir. Í ástandi hræðslu og óvissu verður það enn hættulegra að svipta fólk valdi yfir eigin lífi. Baráttu verkalýðshreyfingarinnar í meira en eina öld má kjarna í orðunum – valdefling og lífsgæði fyrir okkur öll.
Til hamingju með daginn – sækjum fram til meiri jöfnuðar og jafnréttis!
Drífa

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • 120 félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness sviptir góðum tekjumöguleikum

    Hvað kom fyrir Vilhjálm Birgisson verkalýðsleiðtoga?

    127 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • ,,Hræðsluáróðri hefur verið beitt eins og svipu“

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Hvert fóru þessir 23 milljarðar?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Næsta lægð er væntanleg

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?