Í Síðdegisútvarpinu á Útvarp Sögu, ræddi Kristján Örn Elíasson við Kristjönu Kristjánsdóttur og Smára B. Ólafsson, leigubílstjóra, auk Brynjólfs Sveins Ívarssonar lögfræðings, um stöðu leigubílamála. Þar kom fram hörð gagnrýni á skort á eftirliti og seinagang lögreglu við afgreiðslu mála sem tengjast brotum innan stéttarinnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Kærur fá ekki framgang
Brynjólfur sagði að margar kærur sem lagðar hafi verið fram væru látnar liggja í skúffum mánuðum saman án þess að þær fengju framgang. Þótt um væri að ræða alvarleg mál, þar á meðal ofbeldi og fjársvik væru þau oft ekki rannsökuð með þeim þunga sem eðlilegt mætti telja. Brynjólfur segir að þetta leiði til þess að brotamenn haldi áfram störfum óáreittir og aðgerðir stjórnvalda verði bitlausar.
Lögreglunni skortir úrræði og mannafla
Viðmælendur sögðu lögreglunni ákveðin vorkunn að búa við mikla manneklu og fjárskort sem geri henni erfitt fyrir að sinna málaflokknum. Á sama tíma hafi forgangsröðun dregið úr því að brot leigubílstjóra séu rannsökuð. Afleiðingin sé sú að litlar líkur séu á að brot hafi raunverulegar afleiðingar og þannig skapist vítahringur þar sem vantraust gagnvart leigubílastéttinni og lögreglu eykst og að sama skapi fjölgi lögbrotunum.
Linkind eða kerfislægur vandi?
Í þættinum var velt upp hvort um væri að ræða einfaldlega linkind af hálfu lögreglu eða djúpstæðara kerfislægt vandamál. Í þættinum kom fram að Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, hafi meðal annars bent á að brot haldist ósótt til saka þrátt fyrir að liggi fyrir myndbandsupptökur og önnur skýr sönnunargögn. Viðmælendur töldu að slík aðgerðaleysi grafi undan virðingu laganna og hvetji frekar til brota.
Brýnt að tekið verði á málunum af festu
Bæði Kristjana og Smári sögðu brýnt að ráðherra og stjórnvöld tækju ábyrgð á ástandinu. Það dygði ekki að vísa til reglugerðarbreytinga eða framtíðarfrumvarpa þegar kærur og kvartanir væru látnar liggja óhreyfðar. Þau lögðu áherslu á að tafir á rannsókn mála grafi ekki aðeins undan trausti á stéttinni heldur einnig á lögreglunni sjálfri.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.