Í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti 10 ára stúlku sl. sunnudag, 15. september, leitar embættið eftir myndefni frá vegfarendum sem óku um Krýsuvíkurveg, á milli Vallahverfis í Hafnarfirði og Vigdísarvallavegar, þennan sama dag á milli kl. 13 og 18.
Mörg ökutæki eru búin myndavélum og því viðbúið að myndefni frá umræddum vegarkafla á áðurnefndum tíma sé að finna í fórum einhverra. Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að senda upplýsingar um slíkt á netfangið abending@lrh.is og gefa þar upp bæði nafn sitt og símanúmer. Í framhaldinu verður haft samband við viðkomandi.
Umræða